Í þættinum „Um land allt“ á SÝN+ er fjallað um Þórshöfn er þar búa núna um 340 manns af 540 íbúum sveitarfélagsins Langanesbyggðar. Ólíkt öðrum byggðum á norðaustanverðu landinu hefur haldist ágætis þróttur í samfélaginu þar.
Hús við aðalgötuna sem kallast Kistan var áður pósthús, sparisjóður og banki. Þar er núna atvinnu-og nýsköpunarsetur sem Langanesbyggð og Þekkingarnet Þingeyinga standa á bak við.
„Við erum atvinnu- og nýsköpunarsetur í Langanesbyggð. Og við erum að reyna að fá fólk hérna til að vinna í fjarvinnu og erum með aðstöðu fyrir alls konar starfsemi,“ segir Heiðrún Óladóttir verkefnastjóri.
„Við erum líka mikið að hugsa um námsmenn. Þeir fá hérna sólarhringsaðgengi og við þjónustum þá á alla lund. Til dæmis voru tekin hérna 35 próf bara í vor. Mest háskólapróf en framhaldsskólapróf líka.“
Efri hæðin er tímabundið nýtt til kennslu elstu nemenda grunnskólans á Þórshöfn meðan viðgerðir standa yfir á hluta skólahússins eftir að þar greindist mygla. Húsnæði Kistunnar nýtist jafnframt fólki sem stundar háskólanám í fjarkennslu.
„Það eru margir í háskólanámi hérna sem bara búa hér og vinna. Þetta fólk skilar sér náttúrulega inn hingað til að vinna verkefni og læra undir próf. Og kemur svo í prófin hér.
Það þarf kannski að fara í einhverjar lotur í einhverjum tilfellum inn á Akureyri, og einhverjum tilfellum suður, en það er bara langmest hér. Þannig að það er alveg að færast í aukana að fólk skrái sig í háskólanám og nýtir sér svo þessa aðstöðu,“ segir Heiðrún.
Sjávarútvegsfræðingurinn Svanhildur Björt Siggeirsdóttir og rafvirkjameistarinn Mateusz Swierczewski eru bæði að bæta við sig háskólagráðum í fjarnámi. Hún í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og hann í rafiðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
-Þú getur numið rafiðnfræðina í gegnum Þórshöfn?
„Já, sem er stórkostlegt. Að geta bara mætt í Kistuna og tekið lokaprófin þar. Já, það hjálpar,“ segir Mateusz.
Hér stunda nemendur háskólanám í fleiri greinum.
„Það er fólk sem er að sækja sér kennararéttindi, leikskólakennararéttindi, - og hjúkrunarfræðingar,“ nefnir Heiðrún sem dæmi.
Kistan býður fólki jafnframt upp á aðstöðu til að sinna störfum í fjarvinnu en búa í Langanesbyggð. Hvaða þýðingu hefur svona starfsemi fyrir samfélagið á Þórshöfn og nærsveitum?
„Bara mjög mikla, myndi ég segja. Fólk getur flutt hingað ef það er í starfi án staðsetningar. Þá er bara upplagt að koma hingað og fá rými hér í Kistunni og vinna vinnuna sína og taka þátt í góðu samfélagi þar sem að margt er að gerast,“ segir Heiðrún Óladóttir í Þekkingarneti Þingeyinga.
Við fjöllum um Þórshöfn í þættinum „Um land allt“ sem frumsýndur er á Sýn+ í kvöld, miðvikudag, klukkan 19:20. Þáttaröðina alla má nálgast á streymisveitu Sýnar.
Hér má sjá sýnishorn úr fleiri þáttum: