Seðlabankinn telur að atvinnuleysi aukist áfram og nái hámarki á næsta ári. Það fari síðan minnkandi.
Verðbólgan verður að mati Seðlabankans meiri á næstunni en hann gerði ráð fyrir í spá sinni í ágúst. Þó gerir bankinn enn ráð fyrir að verðbólga minnki tiltölulega hratt þegar líður á næsta ár. Ef spá bankans gengur eftir fer verðbólgan undir 4% um mitt næsta ár og í 3% undir lok ársins. Það yrði minnsta verðbólga síðan 2020, á fyrra ári covid-faraldursins.
Hagvöxtur var 1,3% á fyrri hluta ársins en útlit er fyrir að landsframleiðsla hafi dregist saman bæði á öðrum og þriðja ársfjórðungi. Bráðabirgðatölur Hagstofu Íslands sýna að landsframleiðsla hafi dregist saman á öðrum ársfjórðungi og talið er að einnig hafi verið samdráttur á þriðja ársfjórðungi.
Þetta er meðal þess sem fjallað er um í Peningamálum Seðlabankans.
„Dregið hefur úr innlendri eftirspurn og horfur eru á minni vexti einkaneyslu en áður var spáð. Útflutningshorfur hafa jafnframt versnað, m.a. vegna minni aflaheimilda í sjávarútvegi. Hagvaxtarhorfur hafa því versnað frá ágústspánni. Nú er spáð 1% hagvexti í ár og 1,2% á næsta ári sem er í báðum tilvikum um ½ prósentu minni vöxtur en þá var gert ráð fyrir. Líkt og í ágúst er talið að hagvöxtur aukist á ný þegar líður á spátímann.“
Alþjóðleg efnahagsumsvif hafa verið þróttmeiri en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í ágúst þrátt fyrir viðvarandi stríðsátök. Hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum hefur verið meiri en spáð var og útlit er fyrir að hann verði meiri á árinu en áður var gert ráð fyrir.
Þetta kemur fram í ritinu Peningamálum sem Seðlabankinn gefur út samhliða tilkynningu sinni um að stýrivextir verði óbreyttir.
Verðbólga er enn of mikil og verðbólguvæntingar eru yfir markmiði, segir peningastefnunefnd Seðlabankans í yfirlýsingu sinni um hvers vegna hún heldur stýrivöxtum óbreyttum.
„Óvissa um verðbólguhorfur er töluverð, ekki síst vegna alþjóðlegrar verðlagsþróunar. Þá er ekki hægt að útiloka að afleidd áhrif mikilla kostnaðarhækkana eigi enn eftir að koma fram í verðlagi.“
Peningastefnunefnd segir því rétt að halda vöxtum óbreyttum og viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum. Þeir verða því áfram 8,00%.
Yfirlýsing Peningastefnunefndar er svohljóðandi:
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.
Verðbólga mældist 5,9% í október og hafði aukist frá því í sumar. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist stöðug í liðlega 4%. Alþjóðlegt eldsneytisverð hefur haldist hátt. Á móti vegur að dregið hefur enn frekar úr vexti innlendrar eftirspurnar og hagvaxtarhorfur hafa versnað sem ætti að stuðla að hjöðnun verðbólgu á komandi misserum.
Nýbirt spá Seðlabankans gerir því ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári líkt og spáð var í ágúst. Vísbendingar eru um að afleidd áhrif hækkunar eldsneytisverðs hafi verið minni en upphaflega var óttast. Verðbólguvæntingar hafa lækkað og sátt náðist á vinnumarkaði fyrr í haust um að kjarasamningum yrði ekki sagt upp.
Verðbólga er þó enn of mikil og verðbólguvæntingar eru yfir markmiði. Óvissa um verðbólguhorfur er töluverð, ekki síst vegna alþjóðlegrar verðlagsþróunar. Þá er ekki hægt að útiloka að afleidd áhrif mikilla kostnaðarhækkana eigi enn eftir að koma fram í verðlagi.
Peningastefnunefnd telur því rétt að halda vöxtum óbreyttum og viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Bæði Íslandsbanki og Landsbankinn spá því að stýrivextir verði óbreyttir, 8,00 prósent.
Greiningardeild Íslandsbanka sagði í síðustu viku að kólnandi eftirspurn, vaxandi slaki og lækkandi verðbólguálag vægi að hennar mati þyngra en þrálát verðbólga og háar langtímaverðbólguvæntingar. Hún telur að vaxtalækkunarferli hefjist í maí 2027 og að stýrivextir verði komnir í um 6% um mitt ár 2028.
„Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun,“ sagði greiningardeild Landsbankans.
Góðan dag og velkomin í fréttavakt um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans.
Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir í dag ákvörðun sína um hvernig stýrivextir verða næstu mánuðina. Þeir hafa verið 8,00 prósent síðan í ágúst þegar þeir hækkuðu í þriðja skipti á innan við hálfu ári.
Ákvörðun nefndarinnar verður kynnt klukkan 8:30 og fimm mínútum síðar birtist nýjasta hefti Peningamála, rits Seðlabankans um stöðu efnahagsmála.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera svo grein fyrir ákvörðuninni klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með því í beinni útsendingu hér í færslunni á eftir.