Á Alþingi eru sex varaforsetar sem stýra þingfundi þegar forseti er vant við látinn. Fyrsti varaforseti er Bryndís Haraldsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum og annar varaforseti Ingvar Þóroddsson og hafa þau tvö verið reglulega í forsetastól þetta kjörtímabilið.
Alla jafna hafa þingflokkarnir komið sér saman um val á varaforsetum þegar þeir eru svo kjörnir á þingfundi. Forseti og varaforsetar skipa forsætisnefnd sem tekur ákvarðanir um margvísleg málefni sem varða Alþingi.
Varaforsetasætin eru á bak við tjöldin gefin flokkum, ekki persónum. Til að mynda tók Grímur Grímsson úr Viðreisn tímabundið við sæti annars varaforseta í fyrra þegar Ingvar, sem þá var samflokksmaður Gríms, var í veikindaleyfi. Nú er Ingvar genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og því er flokkurinn með bæði fyrsta varaforseta og annan.
Eftir óundirbúinn fyrirspurnartíma á þingfundi í dag, sem hefst 13:30, verður kosning 2. varaforseta samkvæmt dagskrá þingsins. Gera má ráð fyrir að það verði þingmaður Viðreisnar sem verður kosinn í það embætti.
Einungis fjórir ráðherrar verða til svara í óundirbúna fyrirspurnatímanum. Það eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.