Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir í dag ákvörðun sína um hvernig stýrivextir verða næstu mánuðina.
Vextirnir hafa verið 8,00 prósent síðan í ágúst þegar þeir hækkuðu í þriðja skipti á innan við hálfu ári.
Ákvörðun nefndarinnar verður kynnt klukkan 8:30 og fimm mínútum síðar birtist nýjasta hefti Peningamála, rits Seðlabankans um stöðu efnahagsmála.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera svo grein fyrir ákvörðuninni.