Alexander Skarsgård segist verða að leggja reglulega frá sér símann og fara út í náttúruna. Það sé nauðsynlegt mótvægi við umstangið sem fylgir kvikmyndahátíðum og tökum á bíómyndum. Þess vegna komi hann svo oft til Íslands til að ganga eða veiða.
Skarsgård tók við heiðursverðlaunum RIFF 24. september en í þetta skiptið staldraði hann stutt við. „Ég stoppa ekki lengi en það er yndislegt að vera hérna. Ég hef saknað Íslands,“ segir hann í spjalli við Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur í Kastljósi þar sem þau ræddu lífið, framann og nýju kvikmynd Skarsgård, Wicker.
Þar leikur hann mann sem fléttaður er úr tágum og blásinn lífi til að gerast lífsförunautur einmana konu í litlu þorpi á óræðum tíma sem minnir á miðaldir.
Tágamaðurinn Skarsgård
„Wicker frekar rugluð gamanmynd,“ segir Skarsgård. „Myndin fjallar um konu sem býr í útjaðri þorpsins en er líka á jaðrinum félagslega. Henni er strítt og hún ákveður að útvega sér mann.“
Konan, sem leikin er af hinni óviðjafnanlegu bresku leikkonu Oliviu Coleman leitar til körfugerðarmanns (Peter Dinklage) og borgar honum fyrir að flétta handa henni mann. Við tekur atburðarás þar sem ástarsamband konunnar og tágamannsins þróast og bæjarbúar bregðast við með öfund og afbrýðisemi.
Tágamaðurinn í Wicker er aðeins eitt af þeim mörgu fjölbreyttu hlutverkum sem Skarsgård hefur tekið að sér á síðustu árum en ferilskrá hans er mjög litskrúðug. Hann hefur leikið allt frá vampírum til tæknimógúla og ofbeldisfullra eiginmanna.
Sama nálgun fyrir myrk og létt hlutverk
Aðspurður hvort hann beiti sömu aðferðum til að undirbúa sig fyrir öll hlutverk jánkar Skarsgård. „Ég myndi segja það. Ég kem ekki öðruvísi að hlutverki hvort sem það er myrkt eða létt,“ segir hann.
„Aðferðin er sú sama. Sálfræðilega fer maður inn á aðrar slóðir ef maður leikur í gamanmynd eða, eins og í Big Little Lies þegar maður spilar ofbeldisfullan eiginmann. Það er auðvitað þyngra og erfiðara. Undirbúningurinn er samt tæknilega sá sami myndi ég segja.“
Þess má geta að Skarsgård fékk bæði Emmy-verðlaun og Golden Globe-verðlaun fyrir hlutverk sitt í Big Little Lies þar sem hann lék á móti Nicole Kidman.