Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir

Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir

Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir

Þetta segja Nína Dögg Hilmarsdóttir, Natalía Nótt Helgadóttir, Matthildur Bolladóttir og Nadía Hólm Elísdóttir sem allar voru um borð í bátnum en þær eru á aldrinum 21 til 24 ára.

Ferðin hafi verið í höndum Úrval Útsýnar en World Class séð um dagskrá ferðarinnar. Hún náði yfir þrjár nætur og var bátsferðin ekki hluti af upphaflegri dagskrá, að sögn kvennanna. 

Þess í stað hafi Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class, stungið upp á bátsferðinni og séð um skipulag. Þátttakendur hafi svo fengið aukareikning fyrir kostnaðinum frá Laugum ehf., rekstrarfélagi World Class. 

Birgitta Líf segir að ferðin hafi verið á vegum Úrval Útsýnar og bátsferðin ekki í ferðapakkanum eða hinni skipulögðu World Class-dagskrá. Hún vísar því á bug að þau hafi sýnt afskiptaleysi gagnvart konunum. 

Klippa: Hamagangur í Ibiza-ferð World Class

Að sögn Nínu, Natalíu, Nadíu og Matthildar gekk fyrri hluti siglingarinnar vel og þær komið við á eyju þar sem þær fengu sér að borða. Það hafi svo verið í bakaleiðinni sem eitthvað fór að fara úrskeiðis. Skipstjórinn hafi skyndilega stöðvað bátinn eftir um tuttugu til þrjátíu mínútna siglingu og þær byrjað að finna brunalykt.

Gert lítið úr vandanum áður en þeim var skipað að hoppa út í sjó

„Við héldum að þetta væri að koma annars staðar frá og pældum fyrst ekki mikið í því. Síðan byrjaði að koma hvítur reykur og við létum skipstjórann vita af því. Hann sagði fyrst að þetta væri ekkert til að hafa áhyggjur af því bátar ofhitni stundum,“ segja þær fjórar í skriflegu svari til Vísis.

„Reykurinn fór síðan að aukast og verða dekkri. Þá fór skipstjórinn að hringja eftir aðstoð en náði ekki á neinn. Þarna var hann orðinn mjög stressaður og ein úr hópnum lét vita að hún væri ekki synd. Reykurinn varð svo svartur og þá sagði skipstjórinn að við yrðum að hoppa strax frá borði og synda í burtu frá bátnum.“

Þarna hafi enginn bátur verið nálægur og þær komist að því að hvorki væru björgunarvesti né björgunarhringur um borð. Einhverjir farþegar hafi þá stokkið út í sjóinn og þar á meðal ein sem var ósynd. Flotbretti hafi verið um borð og þær stuðst við það til að halda sér á floti og hjálpa þeirri sem kynni ekki að synda.

Óttast sprengjuhættu

„Sem betur fer kom fljótlega bátur að og þegar við vorum að reyna að synda að honum rak bátinn okkar alltaf að okkur og rakst á okkur,“ segir í svari farþeganna fjögurra. Fólk hafi verið hrætt um að báturinn kynni að springa.

Áhöfn bátsins sem kom til aðstoðar var ótengd bátaleigunni, að sögn kvennanna. „Hann var heppilega að sigla fram hjá og heyrði okkur kalla á hjálp. Í bátnum voru aðrir spænskir ferðamenn sem höfðu leigt sér þennan bát fyrir daginn.“

Á leiðinni yfir í hinn bátinn hafi sími, hleðslubanki, töskur og skartgripir meðal annars farið út í sjó. Þegar þær voru komnar yfir hafi þær svo látið fólkið í hinum bátunum vita af því sem hafði gerst.

Hafi ekki litið á þær

„Skipstjórarnir á hinum bátunum frá fyrirtækinu létu vita að við þyrftum aðstoð. Hinir þrír bátarnir komu til okkar og athuguðu með okkur nema báturinn sem Birgitta og Anna [Bergmann, pilatesþjálfari og markaðsstjóri World Class] voru á. Þau komu og stoppuðu í smá stund en enginn leit einu sinni á okkur.“

Þær gera athugasemd við að enginn hafi tekið á móti þeim á bryggjunni þegar þær komu í land, hvorki frá World Class né bátaleigunni. Þess í stað hafi þær verið beðnar um að hitta Birgittu og Önnu síðar í gestamóttöku hótelsins.

„Við upplifðum hittinginn sem við værum að trufla þær enda áttu þær bókað borð á veitingastað. Þær sögðust vera til staðar fyrir okkur en það væri ekkert meira sem yrði gert það kvöld.

Við áttum að hittast aftur eftir æfinguna morguninn eftir og þær ætluðu að gera [spjallhóp] fyrir okkur, sem vorum í bátnum, til að ræða þessa hluti. Ekkert af þessu var gert.“ Þess í stað hafi þeim síðar einfaldlega verið bent á að hafa samband við bátaleiguna.

Þetta hafi svo ekki verið rætt frekar fyrr en þær sendu tölvupósta á ferðaskrifstofuna Úrval Útsýn og World Class „til að fá útskýringar á ýmsum hlutum og láta vita hvað hefði betur mátt fara og fengum frekar leiðinleg svör á móti.“

Birgitta Líf kannast ekki við meint afskiptaleysi hennar og annarra fulltrúa World Class.

„Við höfðum samband þegar við fengum upplýsingar um atvikið, hittum þær þegar komið var í land, fórum yfir málið með þeim, buðum áframhaldandi aðstoð og miðluðum upplýsingum frá bátafyrirtækinu þegar þær bárust,“ segir Birgitta í svari á Facebook-hópnum Beautytips þar sem atvikið hefur verið til umræðu.

Sýnt skort á nærgætni

Nína, Natalía, Matthildur og Nadía vilja árétta að þær líti ekki svo á að Birgitta, Anna eða World Class beri ábyrgð á bátaatvikinu sjálfu.

„Gagnrýni okkar beinist að framkomu þeirra sem stóðu að ferðinni og viðbrögðum þeirra, eða skorti á viðbrögðum, í kjölfarið. Að okkar mati var framkoman ófagmannleg og sýndi skort á nærgætni og tillitssemi gagnvart þeim sem urðu fyrir áfallinu.

Fjórar af þeim sex konum sem lentu í atvikinu voru einar á ferð og þekktu enga aðra í hópnum. Þær höfðu því engan nákominn sér til stuðnings þegar áfallið fór að segja til sín, en hjá flestum okkar gerðist það ekki fyrr en um kvöldið.“

Þær hefðu viljað finna fyrir meiri stuðningi eða boð um aðstoð. Einföld afsökunarbeiðni hafi verið nóg en í staðinn hafi þeim liðið eins og það hafi verið gert lítið úr upplifunum þeirra.

„Okkur finnst einfaldlega sjálfsagt að sýna fólki umhyggju og vera til staðar þegar það lendir í svona aðstæðum.“

Yfirlýsing Birgittu Lífar í heild sinni

„Mig langar að koma á framfæri að Ibizaferðin sjálf var ferð á vegum ferðaskrifstofu. Innifalið í þeirri ferð sem þátttakendur keyptu var flug, hótel, morgunverður og akstur til og frá flugvelli. World Class sá um æfingadagskrá ferðarinnar. Við vorum ekki fararstjórar hópsins og utan æfinganna var engin skipulögð dagskrá á vegum World Class. Við tókum engu að síður að okkur, að eigin frumkvæði, að útbúa tillögur fyrir hópinn um veitingastaði, afþreyingu, beach clubs, verslanir o.fl. til þess að gera ferðina sem skemmtilegasta fyrir alla.

Bátferðin var EKKI hluti af ferðapakkanum né hinni skipulögðu World Class dagskrá. Hún var valkvæð aukabókun hjá sjálfstæðu bátafyrirtæki, Smart Charter Ibiza, sem ég tók að mér að vera milliliður fyrir.

Upphaflega ætluðum við sjálf að bóka bátsferð fyrir okkar vinkonuhóp en þegar mikill áhugi kom fram hjá öðrum þátttakendum bauðst ég til þess að sjá um að miðla bókun fyrir hópinn. Á endanum urðu þátttakendur um 40. Ég lagði sjálf út fyrir bókuninni fyrir allan hópinn.

Varðandi atvikið sjálft viljum við ekki fullyrða um tæknilega orsök bilunarinnar eða öryggisbúnað bátsins, enda eru þau atriði á ábyrgð bátafyrirtækisins og við höfum ekki faglega þekkingu eða gögn til þess að leggja sjálfstætt mat á þau.

Þegar skilaboð bárust um atvikið vorum við sjálfar enn úti á sjó í öðrum bátum. Um leið og þau komu var svarað í hópspjallinu og spurt um stöðuna og hvort allar væru óhultar. Þegar við komum í land ákváðum við að hitta stelpurnar sérstaklega á hótelinu og fórum þar yfir atvikið með þeim. Við sögðum jafnframt að þær ættu að hafa samband við okkur ef eitthvað frekara kæmi upp og að við myndum miðla áfram upplýsingum frá Smart Charter um leið og þær bærust okkur.

Þær upplýsingar sem við fengum frá Smart Charter voru síðan sendar áfram og fyrirtækið óskaði eftir því að viðkomandi þátttakendur hefðu samband beint við þau varðandi atvikið.

Það er eðlilegt, þar sem Smart Charter er rekstraraðili bátsins og sá aðili sem getur svarað fyrir bátinn, öryggisbúnað hans og tæknilega bilun.

Við vísum því alfarið á bug þeirri mynd að ekkert hafi verið gert eða að við höfum sýnt afskiptaleysi gagnvart stelpunum. Við höfðum samband þegar við fengum upplýsingar um atvikið, hittum þær þegar komið var í land, fórum yfir málið með þeim, buðum áframhaldandi aðstoð og miðluðum upplýsingum frá bátafyrirtækinu þegar þær bárust 💗“

Fréttin hefur verið uppfærð.

#eftir #háska #nærgætni #söknuðu #umhyggju

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942237d/soknudu-naergaetni-og-umhyggju-eftir-haska-a-ibiza

📰 Aðrar fréttir

Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
📅 01.10.2026 👁️ 0
Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
Stjórn RÚV klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort fjölmiðillinn ætti áfram að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina eða ekki. Meirihluti stjórnar greid...
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um hafi verið að ræða karl og konu á vesturhluta Sjálands. Konan var dæmd fyrir að hafa selt spilin o...
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
Næturvaktin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dagarnir geta boðið upp á fjölbreytt verkefni. Það sannaðist í Fossvogi í Reykjavík í fy...
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
Þetta er haft eftir Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands á BBC, sem veitti þó ekki frekari upplýsingar. Íranir hafa vísað þessum ásökunum á bug og...
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi a...
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
📅 01.10.2026 👁️ 0
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal Odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar gagn­rýn­ir for­gagns­röð­un meiri­hlut­ans sem ætl­ar a...
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
Stormur geisar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Vindur er á bilinu 15-25 metrar á sekúndu og getur farið yfir 35 metra ...
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
📅 01.10.2026 👁️ 2
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
Tvær stúlkur af sómölskum uppruna hafa verið dæmdar eftir að 13 ára stúlka var barin tvisvar sama dag í Osló. Árásirnar voru teknar upp og upptökunum ...
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
Christa Pike var átján ára þegar hún, ásamt kærasta sínum, misþyrmdi og drap hina 19 ára Colleen Slemmer árið 1995. Hún hefur setið í fangelsi síðan o...
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder

TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 3
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
The Canary Islands will account for almost half of TUI's airline capacity to its main winter-sun destinations this coming season. The travel giant has...
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
Dagur aldraðra er haldinn í dag. Er um að ræða framtak á vegum Sameinuðu þjóðanna. Deginum er ætlað að bæta stöðu eldra fólks. Ólíklegt er þó að ræður...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
Mynd Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrg
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
Hin fimmtudaga Christa Pike, sem dæmd var til dauða fyrir hrottalegt morð á unglingsstúlku árið 1995, er á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tenness...
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
Þúsundir sjálfboðaliða í heimavarnarliði Danmerkur taka þessa dagana þátt í einhverri umfangsmestu æfingu sem haldin hefur verið frá lokum kalda stríð...
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
📅 01.10.2026 👁️ 2
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
Lögreglumenn eltu uppi og stöðvuðu bílstjóra sem ók glæfralega um vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt.Ökumaðurinn reyndist réttindalaus og má...
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
📅 01.10.2026 👁️ 1
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
A 69-year-old surfer has been seriously injured while surfing at Playa del Águila, near El Cotillo in Fuerteventura. The accident happened at around 1...
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
Í dagbók er annars fjallað um nokkurn fjölda ökumanna sem lögreglan hafði afskipti af víða um höfuðborgarsvæðið vegna þess að þeir óku undir áhrifum á...
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
📅 01.10.2026 👁️ 3
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
Her legal team filed an emergency motion to halt the convicted murderer's execution as it was happening.
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
📅 01.10.2026 👁️ 2
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
Alexander Skarsgård segist verða að leggja reglulega frá sér símann og fara út í náttúruna. Það sé nauðsynlegt mótvægi við umstangið sem fylgir kvikmy...
Nadine og Þór­hildur byrja með nýtt hlaðvarp - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Nadine og Þór­hildur byrja með nýtt hlaðvarp - Vísir
Hlaðvarpsþættirnir Eftirmál komu fyrst út í mars árið 2022 og er eitt allra vinsælasta hlaðvarp landsins með tugþúsundir hlustana á hvern þátt. Hlusta...
THURSDAY WEATHER: A cooler day with showers forecast across parts of the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 1
THURSDAY WEATHER: A cooler day with showers forecast across parts of the Canary Islands
The Canary Islands will experience a cooler and more unsettled day today, Thursday, as the remnants of an Atlantic front move across parts of the arch...
Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee
📅 01.10.2026 👁️ 2
Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee
Fimmtug bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi f...
Kínverskum hótelgestum fjölgaði hlutfallslega í ágúst — gistinóttum fækkaði svolítið
📅 01.10.2026 👁️ 2
Kínverskum hótelgestum fjölgaði hlutfallslega í ágúst — gistinóttum fækkaði svolítið
Gistinóttum á íslenskum hótelum fækkaði um 2,5 af hundraði í ágúst samanborið við sama tíma í fyrra.Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferð...
AI boom could trigger market shocks, Bank of England boss warns
📅 01.10.2026 👁️ 3
AI boom could trigger market shocks, Bank of England boss warns
Andrew Bailey says the central bank is watching the waves of cash being invested in artificial intelligence "very carefully".
Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar
📅 01.10.2026 👁️ 3
Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar
Auðkýfingnum Elon Musk er ætlað stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíðarhernað á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins.Ráðherrann Pete Hegseth ti...
Plummeting Israel flight like 'rollercoaster', says passenger
📅 01.10.2026 👁️ 2
Plummeting Israel flight like 'rollercoaster', says passenger
An aeroplane flying to Israel fell 17,000ft (5,200m) in less than two minutes before it was diverted.
Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga
📅 01.10.2026 👁️ 3
Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga
Heilbrigðisyfirvöld í Lancaster-sýslu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum staðfestu í gær fimmta andlátið þar í landi tengt mislingum. Alls hafa verið skrá...
Svissneskir jöklar skroppið saman um 20% á fimm árum
📅 01.10.2026 👁️ 3
Svissneskir jöklar skroppið saman um 20% á fimm árum
Á aðeins fimm árum hafa svissneskir jöklar skroppið saman um næstum því tuttugu prósent. Til samanburðar má benda á að jöklarnir minnkuðu um tíu próse...
Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann
📅 01.10.2026 👁️ 3
Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann
Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa rætt tilræði um borð í farþegaþotu FlyDubai í hörgul við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Fles...
BBC paying to air shows like Suits and Schitt's Creek is illogical, MPs say
📅 01.10.2026 👁️ 3
BBC paying to air shows like Suits and Schitt's Creek is illogical, MPs say
The issue is one of several raised by an influential committee as debate about the BBC's future continues.
Celebrity Traitors: What you need to know ahead of the first show
📅 01.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors: What you need to know ahead of the first show
Maya Jama, Michael Sheen and Bella Ramsey are among this year's celebrities taking part in the show.
Swiss glaciers suffer 'disastrous' year of ice loss
📅 01.10.2026 👁️ 3
Swiss glaciers suffer 'disastrous' year of ice loss
Scientists say such rapid melting is no longer surprising given the pace of climate change.
China has cracked down on AI relationships. Is it ahead of the game?
📅 30.09.2026 👁️ 4
China has cracked down on AI relationships. Is it ahead of the game?
Beijing has cracked down on AI chatbots that can replicate human relationships. Experts are asking if this is the right thing to do.
US Supreme Court allows execution of Christa Pike to go ahead
📅 30.09.2026 👁️ 3
US Supreme Court allows execution of Christa Pike to go ahead
The death by lethal injection was scheduled to happen earlier on Wednesday before a lower court paused the execution.
Tennessee death row inmate Christa Pike taken to hospital after attempted execution, lawyer says
📅 30.09.2026 👁️ 2
Tennessee death row inmate Christa Pike taken to hospital after attempted execution, lawyer says
One of her attorneys told the BBC that Pike, 50, was in hospital after two syringes of pentobarbital had been administered.
Tennessee death row inmate Christa Pike survives execution attempt after two injections
📅 30.09.2026 👁️ 2
Tennessee death row inmate Christa Pike survives execution attempt after two injections
Killer Christa Pike's lawyer says she is being given "life-saving measures" in hospital after two syringes of pentobarbital.
Tiny image sparks big backlash in Nikon photo contest
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tiny image sparks big backlash in Nikon photo contest
Dr Ning Xu denies he broke the rules of Nikon's annual Small World In Motion contest.
Vape tax comes into force with prices set to rise
📅 30.09.2026 👁️ 3
Vape tax comes into force with prices set to rise
Vaping is about to becoming more expensive due to a new tax on products.
Sjö drepin í skotárás í Sýrlandi
📅 30.09.2026 👁️ 3
Sjö drepin í skotárás í Sýrlandi
Sjö voru drepin og fjögur særðust í skotárás á rútu í Homs-héraði í Sýrlandi í dag. Þetta segir fréttastofan Sana, sem er á vegum sýrlenska ríkisins. ...
Conservatives pledge 'tough love' benefit rules for under-25s
📅 30.09.2026 👁️ 3
Conservatives pledge 'tough love' benefit rules for under-25s
The party says it would bring in new work requirements for young people claiming Universal Credit.
Sakar Bretakonung um gaslýsingu og lýsir með einu orði hvernig líf Díönu hefði orðið án hjónabandsins
📅 30.09.2026 👁️ 3
Sakar Bretakonung um gaslýsingu og lýsir með einu orði hvernig líf Díönu hefði orðið án hjónabandsins
Jarlinn Charles Spencer er búinn að setja allt á hliðina í Bretlandi með bók sem hann hefur ritað um systur sína, Díönu prinsessu. Ekki nóg með að haf...
„Ég er bara ó­trú­lega leiður yfir þessu“ - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 3
„Ég er bara ó­trú­lega leiður yfir þessu“ - Vísir
Mbl.is greindi fyrst frá og hefur eftir Helgu Soffíu Konráðsdóttur, sóknarpresti í Háteigskirkju, að um barsmíðar hafi verið að ræða og atvikið sé „gr...
Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 3
Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber - Vísir
„Maður skilur auðvitað fólkið vel sem býr þarna í kring að það er ekkert spennandi að hafa þetta í kringum sig,“ segir Magnús Hjálmarsson hjá Borgarvi...
Employers should teach primary-age children about work, Milburn says
📅 30.09.2026 👁️ 3
Employers should teach primary-age children about work, Milburn says
The author of a major report into youth activity in the UK says children as young as four should be learning about careers.
Samstaða hjá starfsfólki um að halda starfinu áfram
📅 30.09.2026 👁️ 3
Samstaða hjá starfsfólki um að halda starfinu áfram
Það er fullur vilji allra sem koma að starfi Fimleikafélagsins Bjarkar sem og Hafnarfjarðarbæjar að halda starfi félagsins áfram, telur Hilmar Ingimun...
Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 3
Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands um stöðuna á Reykjanesskaga . Þar segir að landris haldi hægt og rólega áfram við Svartsen...
Rifjar upp hugljúfa minningu í tilefni dagsins: „Eftir það vissi ég að þetta yrði allt í lagi hjá okkur“
📅 30.09.2026 👁️ 3
Rifjar upp hugljúfa minningu í tilefni dagsins: „Eftir það vissi ég að þetta yrði allt í lagi hjá okkur“
Sjónvarpsútsendingar Ríkisútvarpsins hófust þann 30. september árið 1966 og fagna því 60 ára afmæli í dag. Til að byrja með var aðeins sent út tvo dag...
Norræna gengur nú fyrir rafmagni í höfn á Seyðisfirði
📅 30.09.2026 👁️ 3
Norræna gengur nú fyrir rafmagni í höfn á Seyðisfirði
Landtengingarbúnaður til að gera ferjunni Norrænu kleift að ganga fyrir rafmagni á meðan hún er í höfn á Seyðisfirði var formlega tekinn í notkun í da...