Það er fullur vilji allra sem koma að starfi Fimleikafélagsins Bjarkar sem og Hafnarfjarðarbæjar að halda starfi félagsins áfram, telur Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri Bjarkar.
Fimleikafélagið hélt fund í kvöld til að svara spurningum foreldra þeirra 1100 barna sem iðka íþróttir hjá félaginu sem tilkynnti í gær að öllum ráðningarsamningum þjálfara hefði verið sagt upp.
Hilmar segir næstu skref vera að endurskipuleggja starf félagsins. „Það er full samstaða hjá öllu starfsfólki um að halda áfram að byggja upp gott starf,“ segir Hilmar í samstarfi við fréttastofu.
Þótt framhaldið sé óljóst segist Hilmar vera bjartsýnn og vongóður. Nú bíði félagið eftir samtali við Hafnarfjarðarbæ.