Snjóflóð sem féll fyrir sex árum gerði sérfræðingum ljóst að hús undir varnargörðum væru ekki jafn örugg og áður var talið. Ríkið ákvað fyrir 30 árum að byggja varanlegar varnir ofan við alla byggð á snjóflóðahættusvæðum. Því verki er ekki lokið og líkur eru á að biðin eftir varnargörðum lengist enn.
Á fimmta tug Siglfirðinga hlýddu á ofanflóðasérfræðinga í ráðhúsi bæjarins í lok ágúst. Fundurinn var þungur – níu milljörðum hefur verið varið í byggingu snjóflóðavarna fyrir ofan Siglufjörð en miðað við nýjustu rannsóknir verja þær ekki alla byggðina.
Í fimm bæjum til viðbótar eru fundir fram undan þar sem erindið er það sama – íbúðarhús sem talin voru í vari undir varnargörðum teljast nú á hættusvæði.
Til þess að skilja hvað liggur að baki, verður að spóla nokkur ár til baka.
Eftir margra daga óveður á Vestfjörðum féllu tvö snjóflóð á Flateyri seint að kvöldi 14. janúar 2020.
Flóðin voru stór. Annað þeirra fór yfir varnargarð og íbúðarhús.
Fjórtán ára stúlka grafin upp undan þungu snjófargi eftir að hafa legið þar í um 40 mínútur. Að stúlkan, móðir hennar og systkini skyldu sleppa tiltölulega ósködduð frá þessum náttúruhamförum — þykir ótrúleg mildi.
Og eftir þetta snjóflóð – sem ruddist yfir varnargarðinn og á hús beint fyrir neðan hann – var ljóst að það yrði að endurskoða varnargarðana.
Þremur árum síðar gerði mikla ofankomu á Austurlandi. Snemma morguns 23. mars 2023 vöknuðu íbúar í fjögurra íbúða húsi í Neskaupstað við að snjóflóð skall á blokkinni.
Tíu leituðu aðhlynningar en sluppu án teljandi meiðsla. Flóðið rann meðfram leiðigarði og fór yfir hann að hluta.
Ljóst að varnargarðarnir vörðu ekki eins og talið var
Grunur ofanflóðasérfræðinga var þar með staðfestur – það yrði að leggjast yfir líkönin aftur og endurmeta hættu í byggð. Ný orð voru kynnt fyrir þjóðinni – flóðafaldur eða iðufaldur. Það er tiltölulega nýuppgötvað fyrirbæri í ofanflóðafræðum en hefur verið rannsakað til dæmis hérlendis og í Ölpunum.
„Þetta er fremsti hluti snjóflóðs, sem er léttari en þessi þéttasti kjarni sem getur verið ansi þéttur snjór en samt öflugri en kóf sem fylgir flestum snjóflóðum. Og þessi iðufaldur sem getur myndast í sumum snjóflóðum fór sem sagt þarna yfir varnargarðana á tveimur stöðum,“ segir Magni Hreinn Jónsson, fagstjóri ofanflóðahættumats hjá Veðurstofu Íslands.
Iðufaldur getur verið mun hraðari en þétti kjarni flóðsins. Á meðan varnargarðar ýta sannarlega kjarna snjóflóða frá byggðum landsins – telja sérfræðingar sig hafa vanmetið iðufaldinn og hættu á að hann fari yfir garðana.
„Þetta er náttúrulega bara áminning um það að þessar varnir verða aldrei algjör vörn gagnvart öllum snjóflóðum og það var svo sem ekki markmiðið í upphafi, heldur eru alltaf einhver hættusvæði undir þessum vörnum en þetta er bara mjög mikil öryggisbót, þessar varnir og forsenda byggðar á mörgum stöðum á landinu,“ segir Magni.
Þó að veikleikar varnanna komi aðeins fram þegar stór flóð falla þýðir þetta að hættumat sveitarfélaga breytist.
Vilja að hættan í snjóflóði sé minni en í umferðinni
Byggð sem er talin í hættu vegna ofanflóða er flokkuð í þrjá flokka: A, B og C.
Veðurstofan miðar þetta til einföldunar við áhættu í umferðinni.
Á svæðum A og B eru minni eða svipaðar líkur á að deyja í snjóflóði og í bílslysi eða 0,01-0,03% á ári.
Á svæði C eru líkurnar á að láta lífið í snjóflóði hins vegar meiri en að deyja í umferðinni, eða yfir 0,03% á ári.
Fleiri gætu lent inni á nýskilgreindum hættusvæðum
Auk Siglufjarðar hefur ofanflóðahætta verið endurmetin á Ólafsfirði, í Bolungarvík, á Ísafirði, á Bíldudal og í Neskaupstað. Matið breytir litlu í Bolungarvík og á Ólafsfirði.
Breytt hættumat hefur ekki enn verið kynnt á Ísafirði, Bíldudal eða í Neskaupstað – þótt sex ár séu liðin frá því að sérfræðingar sáu að endurmeta þyrfti hættu undir varnargörðum.
Þó endurmat eins og á Siglufirði heyri til tíðinda, að varnir teljist ekki eins öruggar og áður var talið, eru óvarin hús á talsvert fleiri stöðum.
Á Patreksfirði, Bíldudal, Seyðisfirði og víðar, þar sem hafa fallið krapaflóð, snjóflóð og aurskriður, hefur ekki verið lokið við byggingu varanlegra ofanflóðavarna. Þar liggur hættumat ljóst fyrir og hefur víðast hvar gert lengi – og fjöldi íbúðarhúsa og fyrirtækja er óvarinn fyrir ofanflóðum.
En spólum aðeins lengra aftur í tímann.
Enn unnið að vörnum sem átti að ljúka 2010
Mannskæð snjóflóð sem féllu á Súðavík og Flateyri 1995 renna þjóðinni seint úr minni. 34 létust og eyðileggingin var nærri ólýsanleg.
Stjórnvöld ákváðu að framvegis skyldu landsmenn greiða gjald af fasteignum sínum sem yrði notað til að verja þá 16 bæi sem þá töldust í hættu á snjóflóðum. Þessu átti að ljúka 2010. Nýjustu áætlanir reikna með því að síðustu varnir rísi 2034.
Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ og formaður stjórnar Vestfjarðastofu, segir uppbygginguna ekki hafa gengið eins hratt og Vestfirðingar hefðu kosið.
„Það vantar meiri kraft í þetta. Sko, ég geri ekki lítið úr því að núna til dæmis vinnuvélarnar sem vinna á Flateyri, eru, það er mjög mikill peningur sem fer í það. En þetta hefur tekið of langan tíma og við þurfum að spýta í lófana með þetta.“
Skiptir máli að spýta í lófana
„Það er ljóst að ef unnið væri á þeim hraða sem við vinnum á núna þá væri löngu búið að verja alla íbúabyggð fyrir snjóflóðum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra. Ráðuneyti hans er með ofanflóðasjóð, sem fjármagnar að megninu til snjóflóðavarnir, á sinni könnu.
Jóhann Páll segir uppbyggingu snjóflóðavarna hafa gengið hægar en æskilegt sé. Hann sé bjartsýnn á að uppbygging klárist snemma á næsta áratug. „En það þarf auðvitað að forgangsraða þeim svæðum þar sem hættan er mest og sinna vöktun vel í millitíðinni, rýmingum og öðru,“ segir hann.
„En það skiptir máli að spýta í lófana og gera þetta eins hratt og hægt er.“ Ekki hafi verið gert fjárhagslegt mat byggt á nýju hættumati sem segi til um hvað framkvæmdir gætu kostað ofanflóðasjóð.
Jóhann Páll hefur lagt fram frumvarp þess efnis að ríkið stígi af auknum krafti inn í kostnað við viðhald og uppbyggingu á varnarmannvirkjum.