Síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík í fyrrakvöld. Inga er grannvaxin og um 161 sentimetri á hæð. Hún er með ljósskollitað axlarsítt hár og klædd í svartar buxur, svarta peysu og strigaskó.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ingu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.