Rúmlega tvítugur maður frá Marokkó hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti. Honum er gefið að sök að hafa þriðjudaginn 5. ágúst 2025 haft í fórum sínum yfir 600 þúsund danskar krónur, en það er andvirði um 11 milljóna íslenskra króna. Peningana geymdi hann í farangurstösku sinni og veski sínu. Hann var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli við komu frá Nuuk, Grænlandi, en hann hugðist fljúga áfram til Kaupmannahafnar.
Farþegi frá Grænlandi ákærður – Með danskar krónur í farangrinum