Erfitt gæti orðið að komast yfir íslenska hamsatólg um hátíðarnar, en eini framleiðandi landsins er að leggjast í helgan stein. Hann segir fréttir af lokuninni hafa vakið mikil viðbrögð og margir þegar farnir að huga að því að verða sér úti um hamsa fyrir næsta skötuboð.
Garðar og fjölskylda hans að Stóruvöllum í Bárðardal hafa framleitt hamsatólg og tólg síðan 1993. Úr afgangstólg býr hann til útikerti, sem margir kannast eflaust við.
Þó að mörgum þyki hamsatólg og skata um hátíðarnar á pari við malt og appelsín eða rauðkál og grænar baunir, er ekki útlit fyrir að framleiðslan haldi áfram.