Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður Samfylkingarinnar greinir frá því í einlægum pistli á Facebook að afi hans heitinn hafi verið meðal þeirra fjölmörgu íbúa á hjúkrunarheimilum sem gefin voru sterk geðlyf, án vitneskju nánustu aðstandenda. Afi Kristjáns, sem lést um níu mánuðum áður enn hann var kjörinn alþingismaður, dvaldi á hjúkrunarheimilinu Grund þar sem honum voru gefin geðrofslyf án þess að nánustu aðstandendur væru upplýstir sérstaklega um það. Kristján segist ekki hafa haft fulla vitneskju um hvaða lyf afa hans voru gefin fyrr en hann sá það í Kveik á RÚV í gærkvöldi.
Afa alþingismanns gefin sterk geðlyf á Grund án vitneskju nánustu aðstandenda - „Það tók á að rifja upp erfiðar minningar“