Meirihluti stjórnar RÚV hefur beint því til útvarpsstjóra að hann tilkynni Samtökum evrópskra útvarpsstöðva (EBU) að Ríkisútvarpið taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka. Frá þessu greinir Diljá Ámundadóttir Zoëga, sem situr í stjórn RÚV, á Facebook þar sem hún deilir bókun af fundi stjórnar:
Stjórn RÚV vill halda áfram að sniðganga Eurovision - „Það er gaman að segja frá því“