Ummæli fjármálaráðherra um að íslensk heimili ættu að geta þolað sársauka til að ná hallalausum fjármálum eru vond sending inn í þunga stöðu í kjaraviðræðum, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. VR, LÍV og Fagfélögin gerðu alvarlegar athugasemdir ummælin í ályktun í dag.
Fjármálaráðherra á að gæta almannahagsmuna, ekki vinna gegn fólkinu
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var í ítarlegu viðtali á Vísi í morgun. Þar sagði hann meðal annars að sársaukafullt væri að ná aga í ríkisfjármálum en Ísland geti þolað sársaukann þar sem heimili í landinu standi vel.
„Heimilin standa mjög vel og raunar er það þannig að eignastaða heimilanna er með því besta sem við höfum séð í sögunni, vanskil eru þau lægstu sem við höfum séð í sögunni. Kaupmáttur hefur aldrei verið meiri hvort sem hann er metinn á Íslandi eða í alþjóðlegu samhengi,“ sagði Daði í viðtalinu.
Ísland sé að glíma við verðbólgu og því verði lausnin alltaf sársaukafullt. „En ef til er ríki í heiminum sem ætti að geta þolað pínu sársauka þá er það Ísland.“
VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við ummælin í ályktun í dag. Þau segja málflutning hans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki. „Heimili landsins hafa undanfarin ár glímt við mikla verðbólgu, háa vexti og ört vaxandi húsnæðiskostnað. Flest launafólk hefur á sama tíma fengið launahækkanir sem hafa ekki haldið í við verðlag.“
Í ályktuninni segir að fjármálaráðherra viðurkenni sjálfur í viðtalinu að hóflegir kjarasamningar 2024 hafi ekki skilað hjöðnun á verðbólgu sem stefnt hafi verið að. Þrátt fyrir það ætli ríkisstjórnin að hækka gjöld ríkisins umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans.
„Með öðrum orðum: Stjórnvöld kalla eftir aðhaldi en hækka sjálf skatta og gjöld. Þau sækja auknar tekjur í vasa almennings og leggja þannig sitt af mörkum til verðbólgunnar, á sama tíma og fyrirtækin eru látin óáreitt.“
Í ályktuninni segir að það sé ekki boðlegt að fjármálaráðherra tali með þessum hætti um stöðu fólks, „sem árum saman hefur borið þungar byrðar af verðbólgu og háum vöxtum, á sama tíma og ríkisstjórnin bætir sjálf í þær byrðar. Fjármálaráðherra á að gæta almannahagsmuna en ekki vinna gegn fólkinu.“
„Forsendur kjarasamninga gjörsamlega brostnar“
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir VR, LÍV og Fagfélögin funda stíft þessa dagana til að reyna að finna leið til að bregðast við stöðunni á vinnumarkaðnum. Átta dagar eru þar til þau þurfa að ákveða hvort þau segi upp kjarasamningum eða ekki.
„Það er þannig að forsendur kjarasamninga eru gjörsamlega brostnar og þær eru brostnar vegna þess að sveitarfélög og fyrirtæki stóðu ekki við sitt en líka vegna þess að ríkið stóð ekki við sitt. Eitt af því sem ríkið átti að gera var að stilla álögum á launafólk og gjaldskrárhækkunum í hóf.“
Fjárlagafrumvarp næsta árs geri ráð fyrir hinu gagnstæða að mati Höllu. „Og þegar það er gagnrýnt þá stígur fjármálaráðherra fram og segir að heimilin hafi það gott og við séum í einhvers konar sérhagsmunabaráttu. Þetta er náttúrulega algjörlega ólíðandi málflutningur.“
Stór hópur launafólks innan VR hafi fengið launahækkanir sem eru lægri en verðbólga og fólk hafi því í raun tekið á sig launalækkun. „Samhliða því að missa mögulega fasta vexti á íbúðaláninu sínu og vera kannski búið að tvöfalda vaxtabyrði sína. Þannig að þegar hann segir að heimilin hafi það gott og enginn hafi það verra en hann hafði það við upphaf þessara kjarasamninga, þá er það hreinlega rangt.“
Óboðlegt gagnvart launafólki
Halla segir Daða Má vera að vísa í greiningar sem hafi verið gerðar á þróun kaupmáttar. Þar séu fjármagns- og lífeyristekjur teknar með í reikninginn. Lífeyriskerfið sé fullþroskað og togi upp kaupmátt.
„Það er algjörlega óboðlegt gagnvart launafólki að segja það hafi það að meðaltali fínt af því að lífeyristekjur og fjármagnstekjur annarra hópa hafi hækkað. Þannig að mér finnst þetta ofboðslega vond sending inn í þá þungu stöðu sem við glímum við.“
Halla segir nær að ríkisstjórnin taki ábyrgð á ástandinu með verkalýðsfélögunum og atvinnulífinu.
„Það gerir hún ekki með þessari þráhyggju um hallalaus fjárlög. Ég hef ekki séð nein gögn sem renna stoðum undir það að gera hallalaus fjárlög að meginmarkmiði í samfélagsrekstri verði sjálfkrafa til þess að draga úr verðbólgu.“
Halla segir að þvert á móti sé hætta á að verðbólga aukist í gegnum aukin gjöld og það auki aftur vaxtagreiðslur ríkisins sem búi til vítahring sem erfitt sé að komast út úr.
Það sem skipti máli sé að ríkið fari á undan með góðu fordæmi og sýni að það ætli að taka þátt í verkefninu.
„Að leggja fram fjárlagafrumvarp sem er algjörlega á skjön við það, það er það sem við höfum gagnrýnt mjög harðlega.“
Skattar, álögur og gjöld sem lögð eru fram í fjárlagafrumvarpinu ættu að vera samningsatriði, ekki einhliða ávörðun stjórnvölda. „Þannig að þetta eru mjög vond skilaboð inn í mjög þugna stöðu.“