Til þess að hætta verði úr sögunni þarf að hafa verið landsig í Svartsengi í minnst sex mánuði, segir Kristín Jónsdóttir deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks á Veðurstofunni. Landris heldur áfram í Svartsengi og nemur fjórum sentimetrum síðustu þrjá mánuði.
Heildarhættumat Veðurstofunnar sem birt var í dag er óbreytt frá því sem verið hefur. Á hættumatskorti sem Veðurstofan gaf út í dag er hætta ennþá töluverð í Grindavík og er það samanlagt mat sjö hættuþátta.. Dregið hefur hættu á einum þætti sem áður var feitletraður, jarðfall ofan í sprungu.
„Það eru örlitlar breytingar að við erum í rauninni að taka tillit til þeirra framkvæmda sem að hafa orðið í Grindavík að það er búið að vera að fylla upp í sprungur þar. Og það lækkar hættuna aðeins en ekki í rauninni nógu mikið til þess að breyta hættumatinu,“ segir Kristín.
Er þetta samt viðvarandi yfirvofandi hætta?
„Já, við metum það svo. Á meðan að landrisið er í gangi þá er hætta á eldgosi.“
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur gagnrýndi nýtt áhættumat í sjónvarpsfréttum á föstudagskvöldið. Það væri rangt að ástandið í Grindavík væri sambærilegt öðrum byggðarlögum sem byggju við langvarandi náttúruvá. Það ætti aðeins við um Grindavík fyrir 2020. Enn væri ástandið væri einn möguleikinn að gosið gæti innanbæjar.
Til þess að það breytist, segir Kristín, að innflæði kviku undir Svartsengi þurfi að hætta og að landið þar fari að síga þegar kvikan storknar og kólnar:
„Og ef að við sjáum merki í sex mánuði eða lengur að það er sig á svæðinu að þá getum við sagt að hættan sé hjá í bili alla vega.“
Það er bara svo langur tími sem svona hlutir taka?
„Já, því miður þá er það þannig, já.“
Páll Einarsson sagði líka að ekki væri hægt að ganga út frá að Veðurstofan gæti alltaf gefið viðvörun á undan eldgosi.
Í þau sex ár sem atburðirnir hafa staðið yfir á Reykjanesskaga hefur verið stuðst við mörg ólík kerfi, segir Kristín, sem eru óháð hvort öðru, en að reynslan af þeim mjög góð. En að auðvitað gætu þau klikkað.
„Og þá erum við að tala um atburð sem er mjög ólíklegur en hefði mjög miklar afleiðingar. Og við getum örugglega ekki alveg strikað hann út af borðinu. En við verðum samt að segja að það sé ólíklegt.“