Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir sterkar vísbendingar um að stjórnvöld í Íran tengist dularfullu atviki við flugvöll á Englandi um helgina. Verið er að rannsaka hvort nokkrir ungir menn hafi ætlað að fremja þar ódæðisverk. Bandaríkin nýttu sér flugvöllinn í árásum á Íran.
Burnham sagði í samtali við BBC, breska ríkisútvarpið, í dag að að flókin lögreglurannsókn standi yfir. Sendiráð Írans í Bretlandi hafði áður lýst því yfir að stjórnvöld í Íran væru ekki viðriðin málið á neinn hátt. Í yfirlýsingu sendiráðsins voru vangaveltur um að Íran hafi átt hlut að máli fordæmdar.
Lögregla tilkynnti í gær að engin sprengiefni hefðu fundist á vettvangi við flugvöllinn. Stjórnvöld hafa ekki gefið út hvers konar hætta hafi verið á ferðum þar.
Íbúi sem hringdi á lögreglu á sunnudagsmorgunn hafði séð að þremur hvítum sendiferðabílum var ekið að flugvellinum. Hún hafði svo séð menn með grímur við bílana. Fimm Bretar voru handteknir á sunnudag grunaðir um meðferð sprengiefna og brot á hryðjuverkalögum. Þeim var síðar sleppt gegn tryggingu. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að ekkert sprengiefni var í bílunum. Þar fannst þó töluvert af bensíni.