12 umsagnir bárust við frumvarpsdrög um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum, sem voru sett inn í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðar. Umsagnirnar eru frá einstaklingum og ýmsum samtökum, þar á meðal Mannréttindastofnun Íslands, Persónuvernd og Lögmannafélagi Íslands. Í mörgum þeirra er tekið undir mikilvægi þess að bregðast við þróun sem orðið hefur á skipulagðri glæpastarfsemi en í drögunum séu ýmsar grundvallarbreytingar sem taki til allra í stað þess að sníða þær að verkefninu. Í þann streng er tekið í umsögn laganefndar Lögmannafélags Íslands.
Gunnar Atli Gunnarsson lögmaður hjá Landslögum situr í nefndinni. Hann segist ekki draga í efa þá þróun sem hafi orðið í skipulagðri glæpastarfsemi og að ráðherra gangi allt gott til í viðleitni sinni við að styrkja íslenskt réttarkerfi, en það sé grundvallarannmarki á frumvarpinu að það sé verið að gera róttækar almennar breytingar sem munu taka til allra í stað þess að gera afmarkaðar og sértækar breytingar.
Breytingar á réttindum allra sakborninga
Hann hvetur dómsmálaráðuneytið til að fara yfir athugasemdirnar sem eru gerðar en fara ekki í umfangsmiklar breytingar á réttindum allra. Þá er gerð athugasemd við skort á samráði við undirbúning frumvarpsins og vísað til þess að ráðuneytið hafi átt samráð við hagaðila í stjórnsýslunni, ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara meðal annars, en í ljósi þess að í frumvarpinu er kveðið á um nokkra skerðingu á grundvallarréttindum sakborninga þá hefði verið fullt tilefni fyrir ráðuneytið að eiga samráð við fleiri en einungis valdhafa lögreglu og ákæruvalds.
Ekki ástæða til að lengja mögulegt gæsluvarðhald í sex mánuði úr 12 vikum án fyrirvara
Talsmenn lögreglu segja rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi flókna og talsmenn lögreglu hafa vísað til þess að rannsókn mála sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi geti verið flókin og tímafrek, og teygt sig yfir landamæri. Það geti verið þörf á að breyta frestum þar sem kveðið er á um afhendingu gagna til verjenda og hámarkslengd gæsluvarðhalds.
Gunnar Atli segir að þessi sjónarmið lögreglu geti verið algjörlega gild en það sé þá frekar tilefni til að gera þá einhvers konar sértækar breytingar á umræddum lögum en ekki almennar breytingar sem munu taka til allra málaflokka, bæði hefðbundinna mála og og allra mála sem rata fyrir dómstóla. Þetta eigi ekki síst við um lengd gæsluvarðhalds. Það sé vafalaust mest íþyngjandi þvingunarráðstöfun sem beitt sé við rannsókn sakamála og þegar einangrun sé beitt þá geti það haft varanleg áhrif á andlega líðan sakborninga. Það eitt og sér telur hann mæla gegn lengingu. Komi til hennar sé mikilvægt að hún sé afmörkuð með skýrari hætti og 12 vikna hámarkslengd gæsluvarðhalds verði þá að meginreglu en lögregla gæti í sérstökum undantekningartilfellum óskað eftir lengra gæsluvarðhaldi.
Líst ekki á rannsóknaraðgerðir án úrskurðar dómara
Þá geldur laganefndin varhug við að lögreglu verði heimilað að fara í rannsóknaraðgerðir áður en dómsúrskurðar hafi verið aflað. Það væri breyting sem gæti skert réttaröryggi og friðhelgi einkalífs borgara. Ef ráðuneytið kæmist að þeirri niðurstöðu þá þyrfti að skilgreina slíka heimild vandlega. Það megi ekki verða að lögregla einfaldlega taki ákvörðun til dæmis um símhlustun án þess að meginreglan sé að leita til dómara. Aðrar minni breytingar sem gerðar eru athugasemdir við eru til dæmis að tvöfalda frest sem lögregla hefur til að afhenda verjendum gögn, hann telur Gunnar að ætti frekar að stytta. Það sé enn dæmi um að lögð sé til almenn breyting til að bregðast við undantekningartilvikum.