Sjónvarpsútsendingar Ríkisútvarpsins hófust þann 30. september árið 1966 og fagna því 60 ára afmæli í dag. Til að byrja með var aðeins sent út tvo daga í viku. Eins og allir vita þá er staðan allt önnur í dag. Nú er sent út alla daga og líka í júlímánuði, en þann mánuð tóku útsendingar sér sumarfrí allt til ársins 1983.Rithöfundurinn Illugi Jökulsson deilir fyrstu minningu sinni af sjónvarpinu. Hann var sjö ára gamall og móðir hans nýskilin eftir erfitt hjónaband.
Rifjar upp hugljúfa minningu í tilefni dagsins: „Eftir það vissi ég að þetta yrði allt í lagi hjá okkur“