Valgerður Rúnarsdóttir hefur fallist á að snúa tímabundið aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
Þetta staðfestir Valgerður í samtali við fréttastofu. Hún snýr aftur til starfa á föstudag.
Valgerður sagði starfi sínu lausu um síðustu mánaðamót og fór um leið í veikindaleyfi. Hún sakaði stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af heilbrigðisstarfi samtakanna. Skömmu áður hafði forstjóri SÁÁ sagt upp störfum og Valgerður taldi sig ekki geta tryggt gæði þjónustunnar með nýjum utanaðkomandi forstjóra.
Jón Áki Jensson var ráðinn tímabundið í stöðu Valgerðar en hann sagði upp í fyrradag eftir tvær vikur í starfi. Hann vísaði til þess að læknar þyrðu ekki að stíga inn í deildurnar og að ekki væri hægt að halda þjónustunni áfram að óbreyttu. Forstjóri SÁÁ tilkynnti starfsfólki að óskað hefði verið eftir aðstoð frá Landspítala.
Finnur að stjórnendur leggja sig fram
Í samtali við fréttastofu segir Valgerður að hún finni að stjórnendur séu að leggja sig fram um að bæta stöðuna og að hún vilji að það verði friður á meðan verið er að vinna að næstu skrefum. Hún segir ekki liggja fyrir hve lengi hún verður að störfum og framhaldið eigi eftir að koma í ljós.
Spurð hvort hún geti hugsað sér að draga uppsögn sína til baka segir Valgerður að hún hafi verið skýr frá upphafi um að hún leggi áherslu á að ekki megi tapa þekkingu og reynslu síðustu ára. Hún vilji halda áfram þeirri vinnu sem hafi verið unnin og það hljóti að vera hægt að finn lausn á því.
Valgerður segist hlakka til að snúa aftur til vinnu. Hún segir forstjóra Landspítalans hafa lýst fullum stuðningi við SÁÁ og sagt spítalann reiðubúinn til að hlaupa undir bagga ef þörf krefur.