Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir það gleðifréttir að Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) hafi aukið við ráðgjöf sína um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2027.
Í ráðgjöf ICES sem birt var í dag er aukið við ráðgjöf um afla í öllum þremur stofnum. Mest er aukning í makrílafla fyrir næsta ár en lagt er til að afli verði ekki meiri en tæplega 353 þúsund tonn. Það er um 102% hækkun á ráðgjöf frá því árið á undan.
„Stóru jákvæðu fréttirnar eru makríllinn en allt er þetta í rétta átt og auðvitað má segja að þetta sé annars vegar mjög jákvætt bara fyrir þróunina í þessum mikilvægu nytjastofnum okkar,“ segir Hanna Katrín. „Það er bara mjög jákvætt en svo eru fréttirnar bara eitthvað sem skiptir miklu máli fyrir uppsjávarútgerðirnar og þjóðarbúið í heild.“
Veiðar á þessu ári vel umfram ráðgjöf
Ekki er búið að áætla hversu mikil áhrif aukningin hefur fyrir íslenska þjóðarbúið en unnið verður að útreikningi á næstu dögum. Samkvæmt tilkynningu Hafrannsóknarstofnunar er áætlað að heildarafli makríls í ár verði ríflega 398 þúsund tonn sem er 128% umfram ráðgjöf ICES. Aðspurð hvers vegna farið sé umfram segir Hanna Katrín það iðulega gerast þegar mörg strandríki séu að semja sín á milli og skipta ráðgjöf ICES sín á milli.
Jákvætt sé að Ísland hafi náð samningi um makríl í lok síðasta árs. Það samkomulag var við Noreg, Bretland og Færeyjar um skiptingu og stjórn makrílstofnsins. Vitað var að sá samningur fæli í sér veiðar langt umfram ráðgjöfina.
„Við erum að funda núna strandríkin, eða fulltrúar okkar í næsta mánuði núna í október og þar verða vonandi stigin bara frekari skref í átt að samkomulagi um þessa stofna af því að það er náttúrulega það samkomulag sem leggur þá grunninn að því að þessi jákvæða þróun haldi áfram næstu ár,“ segir Hanna Katrín. Nauðsynlegt sé að stemma stigu við ofveiði sem sé áhætta þegar samkomulög eru gerð milli margra ríkja.
„Akkúrat núna eru þetta mjög jákvæðar fréttir og svo mun skýrast á næstunni hvað það nákvæmlega þýðir í veiðum og verðmætum fyrir okkur,“ segir Hanna Katrín.