Rússneskir leyniþjónustumenn lögðu á ráðin um drepa Garry Kasparov, stórmeistara í skák, og Ilya Ponomarev, fyrrum þingmann á rússneska þinginu. Frá þessu greinir spænski fjölmiðillinn El Mundo.
Fram kemur í umfjölluninni að bandarísk stjórnvöld hafi varað Kasparov við í sumar að menn tengdir rússnesku leyniþjónustunni vildu ráða hann af dögum. Eftir það fékk hann öryggisgæslu í fyrsta sinn síðan hann flutti til New York. Hann hefur gagnrýnt Pútín og stjórnvöld í Rússlandi harðlega og yfirgaf landið fyrir fullt og allt 2013.
Rússneskir leyniþjónustumenn skipulögðu einnig morð á Ilya Ponomarev og segir í umfjöllun El Mundo að sá undirbúningur hafi verið lengra á veg kominn. Sá sem hafi átt að fremja ódæðið hafi hætt við.
Rússneska leyniþjónustan skipulagði einnig morð í Vilníus í Litáen. Þar var ætlunin að sitja fyrir fórnarlambinu og annaðhvort stinga það eða hella olíu yfir það og kveikja í, samkvæmt El Mundo. Mögulegt er að talið að þetta tilræði hafi átt að beinast að rússneska stjórnarandstæðingnum Vladimír Kara-Murza. Hann hlaut 25 ára dóm í Rússlandi 2023 fyrir gagnrýni á allsherjarinnrásina í Úkraínu. Honum var síðar sleppt í fangaskiptum.
Fimm menn voru ákærðir í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði fyrir að hafa síðan 2024 skipulagt tilræði við rússneska stjórnarandstæðinga í Bandaríkjunum og Evrópu og fyrir að hafa lagt á ráðin um skemmdarverk í ríkjum sem hafa sýnt Úkraínu stuðning. Meðal hinna ákærðu eru tveir menn tengdir leyniþjónustu Rússlands , tveir menn frá Kúbu og einn frá Venesúela.