Skarsgård hefur að eigin sögn komið hingað til lands á hverju sumri síðastliðinn áratug til að endurnæra sig með útiveru í góðra vina hópi. Meira um það er neðar í fréttinni sem hefst á lýsingu á þeirri upplifun að taka viðtal við stórstjörnu sem var nokkuð skopleg.
Skarsgård fékk sérstök heiðursverðlaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík (RIFF) afhent í gærkvöld áður en kvikmyndin Wicker var frumsýnd hér á landi. Skarsgård var nýlentur á Íslandi þegar fréttamaður settist niður með honum á Edition-hótelinu til að ræða daginn og veginn.
Stærðarinnar bastreður og upplifun fréttamanns
Myndin, þar sem Skarsgård leikur einhvers konar ofinn mann úr bastefni sem á í ástríðufullu og klúru ástarsambandi við hina mögnuðu Olivia Colman (The favorite, The Crown og Fleabag) var frumsýnd í Evrópu deginum áður og var því um Norðurlandafrumsýningu að ræða.
Myndin hefur í raun vakið þó nokkra athygli enda leikur Skarsgård í raun stærðarinnar mennska bastkörfu sem skartar stórum bastreður. Netverjar hafa vísað til kvikmyndarinnar sem 50 tónar af basti (e. 50 shades of Wicker). Skarsgård vildi auðvitað vera viðstaddur frumsýningu Norðurlanda enda er hann sænskur og er auðvitað mörgum Íslendingum kunnugur sem sonur Stella Skarsgård (Chernobyl, Mamma Mia og Dune).
En snúum okkur að viðtalinu. Undirritaður lagði leið sína á Edition-hótelið til að hitta leikarann sem hann hafði sjálfur haft miklar mætur á um töluvert skeið. Um er að ræða einn fjölhæfasta og færasta leikara sinnar kynslóðar og hefur fréttamaður haft miklar mætur á leikaranum síðan hann glæddi vitfirrta milljarðamæringinn Lukas Mattsson (Succession) lífi með glæsibrag.
Áður en við færum okkur að viðtalinu sjálfu langar mig að lýsa aðeins aðdragandanum og stemmningunni í kringum viðtalið enda ekki á hverjum degi sem manni hlotnast sá heiður að spyrja stórstjörnu spjörunum úr. Undirritaður verður að viðurkenna að spennan var nokkuð mikil og þá gerði einnig smá stress vart við sig.
Ekki bætti úr skák að fréttastofa var síðust í röðinni til að ræða við Skarsgård á eftir Ríkisútvarpinu og Morgunblaðinu. Þess má geta að það var hálfkómískt að mæta fimm til sex manna teymi Ríkisútvarpsins á leiðinni út með alls konar farteski og tæknibúnað. Ég var þar einn með símann að vopni svo munurinn hefði ekki getað verið bersýnilegri.
Við tilhugsunina um fréttamenn frá þremur stærstu miðlum landsin að mætast í anddyri Edition hugsa eflaust margir til stórkostlegrar senu úr Anchorman. Þar mætast fréttamenn frá mismunandi fréttastofum og fara í hálfgert stríð en í íslenskum raunveruleika ræða kollegar saman af kærleika í hálfum hljóðum um þá erfiðu tíma sem blasa við íslensku fjölmiðlalífi.
Þegar loks var komið að fréttastofu Sýnar kom upp úr krafsinu að Ríkisútvarpið hafði tekið sér aðeins of mikinn tíma til að ræða málin. Af þeim sökum hélt stórleikarinn að hann væri búinn með viðtöl dagsins þegar komið var að Vísi að halda inn í bakherbergið sem vissulega ekki reykfyllt þó að óþreyja setti svip sinn á andrúmsloftið.
Sænska kempan ætlaði nefnilega að drífa sig út til að snæða kvöldverð með Andra Snæ Magnússyni, Björk Guðmundsdóttur og fleiri þekktum Íslendingum sem biðu hans í anddyri hótelsins. Óþekkti fréttamaðurinn saup hveljur og reyndi að sannfæra ringlaðan Skarsgård um að þetta tæki enga stund, sem er auðvitað aldrei góð byrjun á einlægu viðtali.
Leikarinn tók þó þessu óvænta þriðja viðtali vel og settist niður til að fara yfir málin þótt spyrill fann að hinn blíði Skarsgård vildi ólmur komast í kokteila og snittur með íslenskum vinum sínum til fleiri ára. Á meðan að viðtalið fór fram stóðu tveir tökumenn frá Rúv í ströngu steinsnar frá við að ganga frá tækjabúnaði sínum og snúrum í öllum stærðum og gerðum með tilheyrandi skarkala og öðrum hljóðum.
Stressið og spennan, eða spressið eins og vanir menn kalla það, hurfu þó eins og dögg fyrir sólu þegar við settumst niður á rökstóla eins og góðir félagar. Virðulegt kurteisishjal færðist fljótt að ást Skarsgård á okkar ástkæru fósturjörð.
Leikarinn og fréttamaðurinn ræddu saman í hálfgerðu rökkri sem einkennir ýmsar lúxussetustofur. Eftir um tíu mínútna spjall þar sem var farið yfir víðan völl á hundavaði hélt leikarinn knái á vit ævintýranna. Áður en hann hélt út spurði hann undirritaðan hvort hann ætlaði að sjá myndina. Fréttamaður lumaði á bestu mögulegu afsökun í erminni. Ég kemst ekki, ég er að fara að selja gamalt teppi á Völlunum og síðan fer ég í mat hjá tengdó.
Leikaranum var skemmt og hann kvaddi. Eftir stóð fréttamaðurinn með tæknimönnum Ríkisútvarpsins sem báðust afsökunar á því hvað þeir höfðu verið lengi og spurðu hvort þetta hefði ekki bara gengið vel. „Jú,jú,“ tautaði fréttamaðurinn og rölti í grámygluna og íslenska skammdegið eftir tíu mínúturnar sínar með frægðinni uppmálaðri.
Bestu vinirnir íslenskir og landið magnað
Þá skulum við koma okkur að viðtalinu sjálfu sem hefst auðvitað á Skarsgård að dásama íslenska náttúru.
„Ég kom fyrst hingað því ég elska náttúruna hérna. Síðan kynntist ég fólkinu og nú kem ég hingað aftur og aftur fyrir fólkið. Sumir af mínum nánustu vinum eru hér. Einn minn besti vinur, sem er Íslendingur sem býr í New York, kemur hingað á hverju sumri og skipuleggur göngu með æskuvinum sínum. Hann velur alltaf nýjan stað á eyjunni. Ég hef verið svo heppinn að kynnast fjölmörgum fallegum stöðum. Ég hef tekið þátt í þessari göngu þó nokkrum sinnum. Ég kem hingað á hverju ári.“
Veturinn sé ekki síðri tími til að koma til landsins og þá dreymir hann um að koma hingað í ágúst til að fara í veiðiferð með sömu félögum.
„En veðrið, kuldinn og myrkrið, ég er auðvitað frá Svíþjóð svo það truflar mig ekki,“ segir hann og tekur fram að Andri Snær Magnússon rithöfundur sé hluti af umræddum vinahóp. Það vakti á sínum tíma þó nokkra athygli þegar að Skarsgård birtist í myndbandi til að lýsa yfir stuðningi sínum við Andra þegar sá síðarnefndi bauð sig fram til forseta árið 2016. Skarsgård segist hafa kynnst Andra í gegnum vin sinn Sigga sem býr í New York og er þá að öllum líkindum að vísa til Sigurðar Kjartans Hilmarssonar sem stofnaði Siggi's Skyr.
Pétur í guðatölu hjá leikaranum
Skarsgård þekkir þó enn fleiri Íslendinga en þar á meðal er Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Leikarinn segist vera mikill aðdáandi Péturs eftir dvöl hans í Svíþjóð.
„Ég þekki Pétur því hann spilaði fyrir Hammarby sem er auðvitað félag í suðurhluta Stokkhólms. Hann var eins og Guðinn minn þegar ég ólst upp. Hann er goðsögn í Stokkhólmi.“
„Ég var mikill aðdáandi og þegar ég bjó í Los Angeles þá kom Hammarby þangað í æfingarferð. Ég fékk að fylgjast með þeim og hitti nokkra leikmenn, Pétur var þar á meðal og við héldum síðan sambandi.“
Hvernig er það að sjá hann núna sem borgarfulltrúa? Í allt öðru hlutverki en þú kynntist honum í?
„Hann hefur alltaf verið mjög metnaðarfullur og klár. Mikill frumkvöðull með góðar félagslegar tengingar. Ég var ekki hissa þegar hann sagði mér að hann væri að fara út í pólitík. Hann mun standa sig vel, hann er yndislegur maður.“
Stærsti heiðurinn að vera Íslandsvinur
Hann segir heiðursverðlaun RIFF hafa komið sér verulega á óvart. Hann hafi áður reynt að vera viðstaddur RIFF án árangurs og sé því virkilega glaður að komast í ár.
„Því ég elska þetta land og fólkið. Það var í forgangi hjá mér að koma hingað og láta þetta virka. Ég hef aldrei komist á hátíðina. En mig langaði rosalega að fá það til að ganga með Wicker. Ég vissi ekki af verðlaununum svo það kom rosalega á óvart.“
Hann segir þó að stærsti heiðurinn sé að vera álitinn Íslandsvinur.
„Þegar Andri sagði mér að fólk vísaði til mín sem Íslandsvinar í blöðunum og fleiri stöðum þá hugsaði ég, vá, þetta er risaheiður. Það lét mér líða eins og ég tilheyrði landinu, sem er frábært,“ segir hann og tekur fram að það sé mikill heiður að vera álitinn sem ættleiddur sonur þjóðarinnar.
Spurður hver sé hans uppáhaldsstaður á Íslandi nefnir hann fljótt Hornstrandir.
„Ég elska að vera þar. Ég hef bara verið þar einu sinni. Við gengum þar í um viku, ég myndi elska að komast þangað aftur. Þetta var fyrir tíu árum.“
Ingvar E. í uppáhaldi
Skarsgård hefur þó ekki aðeins komið hingað til lands til að slaka á heldur hefur hann einnig unnið hér að þó nokkrum verkefnum. Til að mynda var hluti af stórmyndinni Northman sem Sjón skrifaði ásamt Robert Eggers tekin upp hér á landi. Einnig voru senur í Succession teknar upp og hluti af myndinni War on Everyone.
Í þessum verkefnum hefur hann leikið á móti þó nokkrum íslenskum leikurum en þar má nefna Ingvar E. Sigurðsson, Björk og Hafþór Júlíus Björnsson í The Northman og Jóhannes Hauk Jóhannsson í Succession.
„Þau eru ótrúleg. Að vinna með Björk var algjör draumur. Hún er mögnuð. Þetta var mjög sérstök sena. Það var upplifun sem ég mun aldrei gleyma. Það sama á við um Ingvar. Við vorum í helli og ég fann fyrir skandinavískri tengingu með þeim öllum. Það er eins og við séum með svipaða tækni og næmni.“
Honum hafi liðið eins og heima hjá sér við tökur hér á landi.
„Andrúmsloftið á settinu var ekki alveg með jafn skýran valdastrúktúr og í Bandaríkjunum. Meiri jöfnuður. Með tilliti til þess hve lítið landið er þá kemur á óvart hvað Reykjavík er skapandi borg. Mikið af fólkinu hér er eins og meistararnir frá endurreisnartímabilinu. Þú hittir kannski einhvern sem vinnur sem smiður en er líka óperusöngvari og málar myndir, það er alveg magnað.“
Þetta er bara tímabundið hliðarstarf fyrir mig.
„Já, einmitt, það myndi ekki koma mér á óvart,“ segir Skarsgård og skellir upp úr. Hann tekur fram að íslenski andinn geti veitt mikinn innblástur.
Áttu þér uppáhalds íslenskan leikara?
„Mér finnst Ingvar vera ótrúlegur. Sú staðreynd að ég fékk að vinna með honum er alvöru glaðningur. Hann er sitt eigið náttúruafl.“
Hann er líka svona líkamlegur og öflugur leikari eins og þú.
„Já, hann er mjög orkumikill og ákafur leikari. Hann er líka svo ljúfur og gaman að vinna með honum.“
Tímafrekt gervi sett sem skilyrði í Skarsgård-fjölskyldunni
Í myndinni Wicker er Skarsgård í ótrúlegu gervi. Spurður hvernig það hafi verið að mæta í förðunarstólinn á hverjum degi segir hann það ekki hafa verið svo slæmt.
„Þetta var bara um einn og hálfur tími eða tveir tímar. Ég var hræddur um að þetta myndi taka um sex klukkustundir en þeir sem sáu um þetta voru alveg magnaðir. “
Við höfum séð þig, bróður þinn Bill (sem trúðurinn í IT) og föður þinn (Stellan Skarsgård í Pirates of the Caribbean og Dune) eyða fjölmörgum klukkustundum í förðunarstólnum. Er þetta einhver klásúla í samningi Skarsgård-fjölskyldunnar? Er það skilyrði að fá svona hlutverk þar sem það þarf að umbreyta ykkur?
„Já, úff, ég held að Dune hafi það verið sex til átta klukkutímar svo ég var heppinn, þetta var ekkert í samanburði við það,“ segir leikarinn geðugi kíminn og hlær dátt.
Hann segist vera virkilega þakklátur og ánægður með að vera á Íslandi.
„Ég vona að fólk njóti myndarinnar. Ég er spenntur fyrir kvöldinu. Ég hlakka til að borða með góðum vinum. Ég er spenntur fyrir því að sjá myndina og hlakka til að fá mér nokkra drykki. Ég er bara yfir mig ánægður að vera kominn aftur og það er risastór heiður að vera álitinn Íslandsvinur.“
Flatkaka og hangikjöt í uppáhaldi
Ertu búinn að læra einhverja íslensku?
„Já, bara smá, en það eru auðvitað einhver líkindi milli sænsku og íslensku.“
Áttu eitthvert uppáhalds íslenskt orð?
„Flatkaka,“ segir hann og það má sjá glampa í augunum við tilhugsunina um ljúffenga flatköku.
Ég skil vel að það sé í uppáhaldi eftir allar þessar göngur um landið.
„Já, nákvæmlega. Og hangikjöt!“ segir hann og hlær enn og aftur dátt og hátt, ánægður með að komast út úr bakherberginu á Edition til vina sinna sem bíða hans við barinn.