Sjö voru drepin og fjögur særðust í skotárás á rútu í Homs-héraði í Sýrlandi í dag. Þetta segir fréttastofan Sana, sem er á vegum sýrlenska ríkisins. Að sögn fréttastofunnar er ekki búið að bera kennsl á árásarmennina.
Heimildarmaður innan öryggissveita landsins, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði við AFP-fréttaveituna fyrr í kvöld að fimm hefðu látið lífið.
Mannréttindasamtökin The Syrian Observatory for Human Rights monitor, segir fórnarlömb árásarinnar öll tilheyra trúarhópi Alavíta. Hann hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum undanfarin ár.
Frá falli Bashars al-Assads Sýrlandsforseta og stjórnar hans hafa sýrlensk yfirvöld glímt við ítrekaðar árásir, meðal annars á höfuðborgina Damaskus og úthverfi hennar.
Skömmu áður en árásin var gerð á rútuna greindi ríkisfjölmiðillinn frá því að sprenging hefði orðið í gasleiðslu nærri einu aðalorkuveri landsins, skammt frá Damaskus. Tveimur dögum fyrr voru skemmdarverk unnin á annarri gasleiðslu í austurhluta landsins.