Jarlinn Charles Spencer er búinn að setja allt á hliðina í Bretlandi með bók sem hann hefur ritað um systur sína, Díönu prinsessu. Ekki nóg með að hafa ritað þessa bók, sem var orðin umtöluð áður en hún rataði í hillur bókabúðanna, heldur hefur hann fylgt útgáfunni eftir með öflugu kynningarstarfi þar sem óhætt er að segja að hann sendi konungi miðjufingurinn.Jarlinn settist í gær niður með verðlaunablaðamanninum Tinu Bown til að ræða bókina. Þar var Spencer spurður hvernig líf Díönu hefði orðið hefði hún ekki gifst Karli, sem þá var krónprins. Svar Spencers var stutt og skýrt:
Sakar Bretakonung um gaslýsingu og lýsir með einu orði hvernig líf Díönu hefði orðið án hjónabandsins