Á aðeins fimm árum hafa svissneskir jöklar skroppið saman um næstum því tuttugu prósent. Til samanburðar má benda á að jöklarnir minnkuðu um tíu prósent frá árinu nítján hundruð og níutíu til tvöþúsund. Það sýnir að jöklarnir bráðna sífellt örar.
Árið tvö þúsund tuttugu og sex mældist önnur hraðasta bráðnun jöklanna frá upphafi mælinga en fimm komma fimm prósent af umfangi svissnesku jöklanna hefur bráðnað það sem af er ári.
Horfinn eftir tíu til fimmtán ár
Matthias Huss, forstjóri Jöklaeftirlits Sviss, segir í samtali við fréttaveituna AFP að um mikið hörmungarár sé að ræða. Sumarmánuðirnir hafi slegið hitamet hver á eftir öðrum og veturinn á undan hafi verið óvenju snjóléttur.
Hann tekur Scex Rouge-jökulinn í norðanverðu landinu sem dæmi um það sem koma skal: „Þetta er jökull sem mun ekki lifa af,“ segir Huss. Ef fram heldur sem horfir telur hann að ísinn á jöklinum verði horfinn eftir tíu til fimmtán ár. Til lengri tíma litið séu fleiri Alpajöklar jafnframt líklegir til að fara sömu leið.
Bráðnunin hefur jafnframt haft töluverð áhrif á rannsóknir jöklavísindamanna en þeir hafa til að mynda þurft að færa mælingarstikur sínar hærra upp á jöklana.
Metbráðnun í fjórum stórum jöklum
Meðalþykkt sumra jöklanna hefur minnkað um allt frá tveimur og hálfum til fjögurra metra og dæmi eru um að jökultungur hafi þynnst um allt að tíu metra yfir sumarið.
Þrátt fyrir hátt hitastig í ár hefur ístapið ekki enn þá farið fram úr metárinu 2022 þegar snjókoma var enn þá minni. Þá hefur minna ryk frá Sahara-eyðimörkinni sest á jöklana í ár, en þar með endurkastast meira sólarljós af yfirborði jöklanna.
Á þessu eru þó undantekningar, en metbráðnun varð í fjórum stórum jöklum í ár. Þar ber hæst að nefna hinn fræga Rhone-jökul og Aletsch-jökulinn, stærsta jökul Alpanna.