Dagur aldraðra er haldinn í dag. Er um að ræða framtak á vegum Sameinuðu þjóðanna. Deginum er ætlað að bæta stöðu eldra fólks. Ólíklegt er þó að ræður sendifulltrúa og fréttatilkynningar almannatengla ráði bót á meini eiginmanns míns sem verður eldri með hverjum degi sem líður.
Æðruleysið orðum aukið
Sagt er að það séu forréttindi að eldast.
Margt bendir þó til þess að fullyrðingar um æðruleysi okkar frammi fyrir tímanum séu orðum auknar.
Iðnaður sem koma á í veg fyrir öldrun veltir milljörðum á ári hverju.
Þakklæti er jafnframt sjaldséð þar sem fólk stendur fyrir framan spegilinn og skoðar gráu hárin með seyðing í mjóbakinu og krukku af pastasósu í lúkunum sem er skyndilega ómögulegt að opna.
„Það eru fáir kostir við það að eldast,“ sagði kvikmyndagerðarkonan Nora Ephron, höfundur When Harry Met Sally og Sleepless in Seattle, í sjónvarpsviðtali stuttu fyrir andlát sitt. „Hvers virði er viska ef maður man ekki neitt? Tími til lesturs ef maður sér ekkert? Þess vegna er mikilvægt að neyta síðustu máltíðarinnar áður en um er að ræða síðustu máltíðina. Annars gæti maður sólundað henni í eitthvað eins og túnfisksamloku.“
Óvíst er hvað Sameinuðu þjóðirnar segja við slíkri gagnrýni á túnfisksamlokur – einn af 218 alþjóðadögum stofnunarinnar er dagur túnfisksins. Aðrir eru dagur kartöflunnar, dagur stáltrommunnar og alþjóðadagur sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna, svo eitthvað sé nefnt.
En þótt alþjóðadagar Sameinuðu þjóðanna virðist jafnfánýtir og söluvarningur langlífisiðnaðarins getur verið að stofnunin hafa óvart, á degi aldraðra, rambað á formúlu sem viðheldur æsku.
Aldagömul töframixtúra
Í dag er ekki aðeins dagur aldraðra. Í dag fagna Sameinuðu þjóðirnar einnig alþjóðlega kaffideginum.
Í bókinni Make Me Well, sem þýtur upp metsölulista í Bretlandi, kafar læknirinn Xand van Tulleken ofan í heilsuiðnaðinn. Í bókinni hrekur hann gagnsemi flestra þeirra ráðlegginga sem bransinn telur okkur trú um að lengi lífið.
Ein er þó sú ráðstöfun sem læknirinn kveður komast næst því að teljast raunverulegur elixír.
Töframixtúran hefur fylgt manninum öldum saman. Er um að ræða hinn óbreytta drykk, kaffi.
Víðtækar rannsóknir sýna að fólk sem drekkur kaffi er í mun minni hættu á að deyja fyrir aldur fram úr öllum helstu dánarorsökum.
Kaffi er talið minnka líkur á sykursýki, hjarta-og æðasjúkdómum, Alzheimer, Parkinson, lifrarsjúkdómum og ýmsum krabbameinum.
Ekki er vitað hvers vegna kaffi hefur þessi áhrif en talið er að bæði leiki þar hlutverk koffínið og andoxunarefni sem dragi úr bólgumyndun í líkamanum.
En hversu marga bolla má drekka?
Töfratalan er ...
Stór yfirlitsrannssókn, sem birt var í breska læknavísindaritinu BMJ, benti til þess að kaffi lækkaði dánartíðni mest hjá þeim sem drukku þrjá til fjóra bolla á dag.
„Kaffi er eitt af því fáa sem við innbyrðum ánægjunnar vegna og sýna má fram á tölfræðilega að dragi jafnframt úr hættu á nánast öllum aldurstengdum sjúkdómum,“ sagði Morten Scheibye-Knudsen, dósent við Kaupmannahafnarháskóla, í samtali við BBC.
Björtum augum
Þau sem hella reglulega upp á hafa fulla ástæðu til að horfa björtum augum fram á við.
Eiginmaðurinn verður hins vegar að gera sér að góðu að horfa út á hlið.