Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og á Miðhálendi til hádegis. Þá eru skriðuviðvaranir í gildi á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á Miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags.
Að sögn veðurfræðings grynnist lægðin í dag og hreyfist í norðvestur. Smám saman dregur því úr vindi. Rigning eða skúrir, en að mestu þurrt á Norðurlandi og bjart með köflum. Þar verður líka hlýjast í dag, um og yfir 15 stig þegar best lætur.
Rólegra veður á morgun, sunnan kaldi og skúrir en lengst af þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 12 stig.
Næsta lægð er væntanleg á laugardag. Þá fer aftur að rigna í strekkings suðaustanátt, fyrst suðvestanlands. Lægðin fer síðan norðaustur yfir landið. Á sunnudag er spáð norðlægri eða breytilegri átt með rigningu eða skúrum, en úrkomulitlu suðaustanlands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Sunnan 5-10 m/s og dálitlar skúrir, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 12 stig, mildast fyrir norðan.
Á laugardag:
Suðaustan 8-13 og fer að rigna, en hægari og úrkomulítið norðaustantil fram eftir degi. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Norðvestanátt og rigning, en styttir upp á sunnanverðu landinu. Hiti 4 til 12 stig, mildast suðaustanlands. Snýst í austanátt og fer að rigna suðvestantil um kvöldið, en úrkomulítið annars staðar.
Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt og rigning, en víða slydda norðanlands. Þurrt að mestu syðra um kvöldið, heldur kólnandi.
Á þriðjudag:
Norðlæg átt og dálítil él á Norður- og Austurlandi, en annars að mestu þurrt. Svalt í veðri.
Á miðvikudag:
Austanátt og dálitlar skúrir, en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi.