Stjórn RÚV klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort fjölmiðillinn ætti áfram að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina eða ekki. Meirihluti stjórnar greiddi atkvæði með tilmælum til útvarpsstjóra um slíka sniðgöngu.
Þrír af sex stjórnarmönnum bókuðu andstöðu sína við þessa ákvörðun meirihlutans. Það eru þau Eiríkur Svavarsson, Ingvar Smári Birgisson og Unnur Brá Konráðsdóttir.
„Í ljósi fyrri umfjöllunar á stjórnarfundum RÚV í aðdraganda þessarar tillögu lýsum við enn og aftur þeirri afstöðu okkar að við teljum það ekki vera í verkahring stjórnar RÚV að taka pólitískar ákvarðanir,“ segja stjórnarmennirnir þrír í bókun sinni.
Þau minna á að Eurovision sé alþjóðleg söngvakeppni sem haldin sé undir kjörorðinu „United by Music“.
„Eurovision er ekki vettvangur til að senda hvers konar pólitísk skilaboð á milli ríkja. Á lögmætum vettvangi EBU hefur verið tekin sú ákvörðun að víkja ekki Ísrael úr keppninni og er það t.d. í samræmi við ákvarðanir alþjóðlegra íþróttasamtaka um þátttökurétt Ísraels í íþróttamótum. Þá hefur mikill meirihluti þjóða Evrópu þegar tilkynnt um þátttöku sinna ríkja í Eurovision.“
Eiríkur, Ingvar Smári og Unnur Brá vísa jafnframt til laga sem gilda um Ríkisútvarpið.
„Samkvæmt lögum um RÚV ber RÚV að stuðla að menningarlegri fjölbreytni í starfsemi sinni og metfjöldi laga hefur þegar borist í íslenska hluta söngvakeppninnar. Með framangreint og margt fleira í huga styðjum við ekki tillögu um að RÚV sniðgangi Eurovision vegna þátttöku Ísraels í keppninni.“