Lögreglumenn eltu uppi og stöðvuðu bílstjóra sem ók glæfralega um vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt.
Ökumaðurinn reyndist réttindalaus og málið afgreitt með skýrslu. Ef marka má dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu snertu verkefni síðustu tólf tíma helst ökumenn og umferð, þar á meðal rafhjólaslys á miklum hraða í vesturborginni og árekstur bíls við ljósastaur þar sem engan sakaði.
Ekkert var vitað um áverka rafhjólamannsins í morgun. Þjófnaður úr verslun er til rannsóknar í því umdæmi sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi og húsráðanda sem hélt hávært samkvæmi í úthverfi var gert að virða svefnfrið nágranna sinna.