Þúsundir sjálfboðaliða í heimavarnarliði Danmerkur taka þessa dagana þátt í einhverri umfangsmestu æfingu sem haldin hefur verið frá lokum kalda stríðsins. Æfingin, sem gengur undir heitinu Blátönn, tekur til heimavarnarliða tengdum öllum deildum hersins og stendur fram á sunnudag.
Samkvæmt nýju áhættumati danskra leyniþjónusta munu Rússar auka enn á fjölþáttaárásir á Vesturlönd og ríki Atlantshafsbandalagsins og það eykur mikilvægi æfinganna að mati Gunner Arpe Nielsen, undirhershöfðingja og yfirmanns heimavarnarliðsins.
Hann segir í samtali við danska ríkisútvarpið að tilgangur æfingarinnar sé meðal annars að auka getu sjálfboðaliðanna til að takast á við fjölþátta ógnir. Verkefni heimavarnarliða líkist sífellt meira því sem þjálfaðir hermenn hafa sinnt hingað til sem skapi auknar kröfur um menntun og þjálfun þeirra.
Heimavarnarliðið hefur orðið æ mikilvægari þáttur í hervörnum landsins síðustu tvo áratugi og hlutverk þess breyst mikið, að mati Esben Salling Larsen, hernaðargreinanda hjá Konunglega danska herskólanum. Styrkur þess liggi í fjöldanum og hversu hratt það geti brugðist við.