Heilbrigðisyfirvöld í Lancaster-sýslu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum staðfestu í gær fimmta andlátið þar í landi tengt mislingum. Alls hafa verið skráð tæplega 3.500 tilfelli mislinga í 47 ríkjum, samkvæmt tölum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, í þessum versta mislingafaraldri um 35 ára skeið.
Í Pennsylvaniu eru skrásett 943 tilfelli. Yfirvöld segja hinn látna hafa verið óbólusettan án þess að tíunda það frekar. Allir sem látist hafa af völdum sjúkdómsins í ríkinu eru óbólusettir.
Fjöldinn allur af Amish-fólki býr í sýslunni. Það er kristinn trúarhópur sem hafnar flestri nútímatækni. Til dæmis þiggja hlutfallslega færri úr þeim hópi bólusetningar en almennt gerist.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld lýstu því yfir um aldamót að mislingum hefði verið útrýmt eftir umfangsmiklar bólusetningarherferðir. Þeir urðu hundruðum barna að fjörtjóni áður en bóluefni var þróað á sjöunda áratugnum.
Enn látast tugþúsundir árlega af völdum mislinga um víða veröld. Efasemdir um gildi bólusetninga og vantraust á heilbrigðisyfirvöld hafa vaxið verulega á undanförnum árum.
Heilbrigðisráðherrann Robert Kennedy yngri hefur ítrekað dreift röngum upplýsingum um mislingabóluefnið og gert lítið úr alvarleika sjúkdómsins. Hann hefur einnig dregið í efa að nýleg dauðsföll hafi raunverulega verið af völdum sjúkdómsins, án þess að leggja fram sannanir þess efnis.