Stormur geisar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Vindur er á bilinu 15-25 metrar á sekúndu og getur farið yfir 35 metra á sekúndu í hviðum. Sunnan jökla má búast við talsverðri rigningu með tilheyrandi vatnavöxtum.
Djúp lægð yfir Suðvesturlandi veldur þessu óveðri á norðaustanverðu landinu en vindur er öllu hægari vestantil. Óveðrið gengur yfir í kringum hádegi og það dregur smám saman úr vindi á landinu eftir því sem líður á daginn.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Austlæg átt ,15-23 metrar á sekúndu, en 10-18 vestantil. Víða rigning. Snýst í sunnan og suðaustan 10-15 í dag, en 15-23 norðaustantil fram að hádegi. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðanlands.
Sunnan 5-13 og skúrir á morgun, en úrkomulítið um landið norðaustanvert.
Hiti 7 til 12 stig, mildast fyrir norðan.