Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir liggja á að finna lausn í kjaramálum áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út eftir viku.
„Kjarasamningar eru með forsendubrest í augnablikinu og við erum að ræða viðbragðið.“
Bjarni var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2.
Hann segir að atvinnurekendur vilji ekki hella olíu á eldinn með því að auka kostnað atvinnulífsins með launagreiðslum.
„Vegna þess að við vitum hvað mun gerast í framhaldinu. Það mun bara viðhalda vandamálinu.“
Hann segir stöðuna þrönga fyrir alla sem koma að kjaraviðræðunum.
Gagnrýnir afstöðu flugvirkja
Bjarni segir nýleg dæmi þess að starfsstéttir geri kröfur um launahækkanir sem séu í engum takti við stöðuna í hagkerfinu. Vísaði hann þar til verkfallsboðunar flugvirkja.
Hann segir að starfsstéttin telji rétt að hún geti miðað sig við einhverja aðra.
„En ef við ætlum að láta hlutina þróast með þessum hætti, að hver komi með sína réttlætingu hverju sinni, verður heildarniðurstaðan sú að við búum við mun hærra vaxtastig og meiri verðbólguvæntingar heldur en aðrar þjóðir.“
Ef stefnan verður að hafa hlutina þannig veltir Bjarni því upp hvort það þurfi einfaldlega að breyta verðbólgumarkmiðum samhliða.
„Og segja að verðbólga eigi bara að vera sex prósent á Íslandi að jafnaði eða einhver önnur tala sem menn komast að eftir að hafa legið yfir því?“