Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um umfang og þarfir fyrir lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum. Hún óskar eftir umræðum við heilbrigðisráðherra.
Tilefnið er þáttur Kveiks á þriðjudag þar sem fjallað var um lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. Þar var rætt við aðstandendur fólks sem hafði verið gefin geðlyf og gagnrýndu þeir hvernig að henni var staðið.
Halla Hrund segir í færslu á Facebook að Kveiksþáttur vikunnar sitji í sér, sérstaklega tölfræðin sem var birt í þættinum.
„Nú veit ég af mörgu fólki sem vinnur ómetanleg störf á hjúkrunarheimilum landsins, sem oft er vanþakklátt starf við krefjandi aðstæður, og eru í góðu samstarfi við aðstandendur,“ segir Halla Hrund.
„En ég hef engu að síður áhyggjur af heildarmyndinni. Að við séum að nálgast öldrun með röngum hætti og höfum gleymt að hugsa um hvert annað á mannlegri vegu í hraða samfélagsins.“
Halla Hrund hefur sent inn beiðni um umræðuna en henni hefur ekki verið svarað.
Meðal þess sem hún vill að verði rætt er greining á stöðu málsins út frá gögnum og tölfræði, mat ráðherra á stöðunni og hvar úrbóta sé þörf, s.s. er varðar umgjörð, mönnun og eftirlit, hvaða erlendu dæmi eru til sem við getum lært af, s.s. í Hollandi og á Norðurlöndunum og hvaða aðgerðir séu þegar í farvatninu og hvað þurfi frekari skoðun.