Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar flutningabíll valt á veginum. Bíllinn og vagn sem hann dró á eftir sér þvera veginn. Ekki hafa borist upplýsingar um meiðsl.
Lögreglan á Norðurlandi vestra bendir fólki á að fara um þjóðveg 1 um Vatnsskarð meðan vegurinn er lokaður.
Lögregla segir ekki ljóst hvenær vegurinn verður opnaður á ný.