Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað.
Þau hjónin ákváðu að minnka við sig og búa nú í einstaklega fallegri íbúð. Lára er mikil kampavínskona og fékk hún skemmtilegan koll að gjöf frá vinafólki. Um er að ræða alvöru korktappa sem er í raun kollur.
Hér að neðan má sjá tappakollinn og meira úr íbúðinni. Heimsókn er aðgengilegt inni á Sýn+.