Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, gagnrýnir klúðrið varðandi útboð knattspyrnustúku við Kórinn. Algjör óvissa ríkir um framhaldið og skaðabótaskylda Kópavogsbæjar hefur verið viðurkennd.„Á dögunum bárust okkur í bæjarstjórn Kópavogs þær fréttir að útboð vegna nýrrar knattspyrnustúku HK við Kórinn hefði verið metið ólögmætt af kærunefnd útboðsmála,“ segir Jónas Már í færslu á samfélagsmiðlum. „Um er að ræða framkvæmdir fyrir milljarða og er algjör óvissa um framhaldið. Útboðið hefur verið fellt úr gildi og skaðabótaskylda Kópavogsbæjar viðurkennd.“
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“