Matthías Már Magnússon, útvarpsmaður og dagskrárstjóri Rásar 2, greinir frá því á Facebook-síðu að hann hafi greinst með krabbamein á dögunum. Fram undan sé barátta sem hann og eiginkona hans ætla að sigra.„Fyrir tveim vikum endaði ég á Bráðamóttökunni sökum orkuleysis, var einhvern veginn alveg búinn á því. Í kjölfarið for ég í hinar ýmsu rannsóknir en það fyrsta sem kom í ljós var mikið blóðleysi og grunur um einhvers konar innvortis blæðingu. Var því dælt í mig blóði og járni og ég hresstist örlítið,“ segir Matthías í færslu sinni.
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“