Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, segist hafa séð leigubílstjórann Saint Paul Edeh, sem hann kallar „Heilagan Pál“ eða „Dýrlinginn“, reyna að lokka ungar stúlkur upp í bíl sinn við strætóskýli á Völlunum í Hafnarfirði í sumar. Þó myndbandið sé nokkurra mánaða gamalt var fyrst verið að birta það núna. Hann telur stúlkurnar hafa verið á grunnskólaaldri og segir bílstjórann hafa látið sig hverfa þegar hann tók eftir sér.
Sneri við þegar hann sá bílstjórann við skýlið
Friðrik segir atvikið hafa gerst um klukkan sjö að morgni og lýsir því svona:
„Ég var að keyra inn á Vellina í Hfj þegar ég sé Dýrlinginn stopp á hinni akreininni fyrir framan strætóskýli að tala við þær svo ég snéri við á næsta hringtorgi og hann lét sig hverfa á núll-einni þegar hann tók eftir mér.“
Friðrik tilgreinir ekki aldur stúlknanna en telur þær enn vera á grunnskólaaldri.
„Ég myndi skjóta á að þær séu enn á grunnskóla aldri.“
Í myndbandinu sem hann birtir eru samskipti hans við stúlkurnar við strætóskýlið, en þær staðfesta að maðurinn hafi rætt við þær og spurt hvert þær væru að fara en hafi svo veifað hendinni og keyrt í burtu.
Friðrik greinir frá atvikinu í nýrri Facebook færslu með myndbandi. Þar gagnrýnir hann yfirvöld harðlega fyrir að hafa ekki komið manninum af götunni og segir góða erlenda leigubílstjóra gjalda fyrir ástandið.
Edeh hefur áður komið við sögu í umfjöllun um leigubílaþjónustu. Atvinnuréttindi hans voru dregin tímabundið til baka í ágúst í fyrra, eftir að myndband af deilu hans við tvær mexíkóskar ferðakonur við Bláa lónið vakti athygli. Vísir greindi frá því í september sama ár að hann væri kominn með réttindin aftur. Edeh sagði þá að hann hefði skilað inn gögnum til Samgöngustofu og hafnaði því að hafa gert nokkuð rangt í samskiptunum við konurnar.
„Dýrlingurinn“ sviptur leigubílaleyfinu – segist ekki hafa verið látinn vita
Gagnrýnir ráðherra og eftirlitsaðila
Friðrik gagnrýnir sérstaklega innviðaráðherra fyrir að hafa ekki komið bílstjóranum af götunum.
„Við erum búin að fara í gegnum tvo innviðaráðherra síðastliðin 4 ár, hvorugum þeirra hefur tekist að koma þessum manni af götunum, þeir hafa ekki einu sinni reynt það.“
Segir góða erlenda bílstjóra gjalda fyrir ástandið
Gagnrýni Friðriks beinist einnig að Samgöngustofu, Isavia, lögreglu og fjölmiðlum. Hann segir foreldra áfram vara börn sín við því að setjast upp í bíla hjá erlendum leigubílstjórum og kallar það sorglegt.
Hann segir marga góða erlenda bílstjóra starfa í greininni og telur þá gjalda fyrir vanhæfa stjórnendur hjá þeim aðilum sem eigi að sinna eftirliti og bera ábyrgð á málaflokknum.
„Það þarf að fara fjarlæga skemmd epli í bransanum af götunum,“ skrifar Friðrik.