Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar mjólkurbíll valt á veginum. Bíllinn og vagn sem hann dró á eftir sér þvera veginn. Bílstjórinn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en óvíst er hvort hann hafi slasast.
Lögreglan á Norðurlandi vestra bendir fólki á að fara um þjóðveg 1 um Vatnsskarð meðan vegurinn er lokaður.
Höskuldur B. Erlingsson aðalvarðstjóri segir viðbúið að langur tími líði áður en vegurinn opnast. Öflug tæki þarf til að fjarlægja bíl og aftanívagn.
Ekki er vitað hvers vegna bíllinn valt. Tildrög þess eru í rannsókn.
Fréttin hefur verið uppfærð.