„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík,“ segir Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Ari hefur látið taka saman fyrir sig minnisblað um áhrif lóðagjalda á fasteignaverð í Reykjavík.Bendir hann á að kostnaður við lóð, gatnagerðargjöld, fjármagn og kvaðir um ákveðið hlutfall leiguíbúða nemi um 40,5 milljónum á hverja 100 fermetra íbúð, eða 405.500 krónum á fermetra, áður en króna fer í að byggja íbúðina.
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“