Talið er að loftslagsbreytingar hafi þar mest áhrif. Breyting hefur orðið á ásýnd alpasvæðisins þar sem stórar hvítar snjóbreiður víkja fyrir grýttum auðnum, sem minna að sögn vísindamanna á tunglið.
Vísindamenn hafa ekki enn tekið saman formlega skrá yfir þá jökla sem horfið hafa í ár, en sögðust hafa orðið vitni að því að nokkrir smærri jöklar væru allir, eftir því sem fram kemur í frétt Guardian. Þá er varað við því að hröð bráðnun jökla gæti ógnað vatnsaflsvirkjunum, landbúnaði, vatnsbúskap og samgöngumannvirkjum á komandi áratugum.
Einnig gæti hættan á skriðuföllum ógnað byggð, sem í verstu tilfellum gæti leitt til skyndiflóða svipuðum þeim sem urðu í Nepal í ágúst síðastliðnum.