Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á Íslandi 2025. Þær góðu séu að sýklalyfjasala dróst saman um tæp 5%. Ísland noti þó enn meira af sýklalyfjum en hin Norðurlöndin. Slæmu fréttirnar eru að aukning hafi orðið í greiningu á bakteríum sem séu sýklalyfjaónæmar.
„Varðandi sýklalyfjaónæmi þá er það almennt lítið hér miðað við mörg Evrópulönd en við sjáum samt merki um aukið ónæmi hjá ákveðnum bakteríum og þetta aukna ónæmi getur gert sýkingar erfiðari í meðferð og fækkað þeim sýklalyfjum sem við getum notað,“ segir Anna Margrét.
Anna Margrét segir að sem dæmi megi nefna aukið ónæmi fyrir E. coli-bakteríum hér á landi. „Þar erum við að sjá aukið ónæmi, bæði svokallað ESBL-ónæmi og alvarlegri gerð ónæmis sem kallast CPE á ensku,“ segir hún.
Svokallaðar CPE-bakteríur (karbapenemasa-myndandi Enterobacterales), sem eru sýklalyfjaónæmar, greindust hjá 22 einstaklingum á síðasta ári – fleiri en nokkru sinni fyrr.
Á síðasta ári fékk um þriðjungur landsmanna sýklalyf. 29% fengu að minnsta kosti eina ávísun á sýklalyf utan sjúkrahúsa en það var 32% árið 2024.
Skýrslan náði til sýklalyfjanotkunar hjá bæði mönnum og dýrum og hefur MAST lýst yfir áhyggjum þar sem heildarsala sýklalyfja fyrir dýr jókst um 21,4% frá fyrra ári.
Ein helsta heilbrigðisógn í heiminum
Sýklalyfjaónæmi er ein helsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Enn er hægt að sjá götusýninguna Skissum sýklalyfjaónæmi sem stendur í Austurstræti. Henni er ætlað að útskýra mikilvægi samstilltra aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi. Lesa má meira um sýninguna hér.
Skortur á fjármagni í aðgerðaáætlun
Anna Margrét segir að unnið sé samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda varðandi sýklalyfjaónæmi sem undirrituð var 2024 og nær frá 2025 til 2029. Hún sé þó einungis fjármögnuð að hluta til. Fjármagn hafi verið veitt fyrir hluta af áætluninni frá heilbrigðisráðuneytinu.
„En það vantar enn upp á fulla fjármögnun bæði hvað varðar önnur ráðuneyti, atvinnuvegaráðuneytið og umhverfisráðuneytið og frekara fjármagn til að geta fullnýtt aðgerðaáætlunina,“ segir Anna Margrét. Hún snúist meðal annars um að bæta sýklalyfjanotkun, koma í veg fyrir sýkingar, efla fræðslu og fylgjast betur með og vakta ónæmi.
Góð staða á Íslandi
Að sögn Önnu Margrétar er staðan hvað varðar sýklalyfjaónæmi góð á Íslandi samanborið við aðra heimshluta.
„Við erum með lága tíðni þessa allra alvarlegasta ónæmis,“ segir hún.
„En staðan í heiminum er sú að ónæmi er að aukast og það breiðist út með fólki, ferðamönnum og ýmsum leiðum,“ segir Anna Margrét sem tekur fram að ónæmi sé mjög algengt í ákveðnum hlutum Evrópu og sé að dreifast út til annarra landa eins og Norðurlandanna og Íslands smám saman. Það sem skipti hvað mestu máli sé að reyna að hægja á þeirri þróun.