Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði boðað til hans.
Fréttastofa hefur hvorki náð tali af Herði né upplýsingafulltrúum fyrirtækisins.
Ekki er vitað hvert efni fundarins er. Í frétt Vísis er því velt upp hvort hann hyggist láta af störfum og segist miðillinn hafa heimildir fyrir því að hann hafi velt slíku fyrir sér. Mbl.is segir að orðrómur hafi verið uppi um að Hörður hygðist láta af starfi.
Hörður var ráðinn forstjóri Landsvirkjunar 2009.