Hrafnhildur staðfesti tíðidin í samtali við Smartland fyrr í dag. Árni og Hrafnhildur hafa verið saman um árabil, gengu í hjónaband júní 2023 og eiga einn son saman.
Hrafnhildur er dóttir Ingu Lindar Karlsdóttur, fjölmiðlakonu og eiganda Skot Productions, og Össurar Brynjólfssonar flugstjóra. Hrafnhildur var um tíma upplýsingafulltrúi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins en er í dag sjálfstætt starfandi hönnuður.
Hjónin settu einbýlishús sitt að Lokastíg á sölu í ágúst en þau höfðu endurnýjað eignina töluvert á síðustu árum.