Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.
Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökultungna rétt fyrir klukkan eitt. Brotnað hafði upp úr veginum þar sem gróf undan honum. Er nú bara þunn rönd vegarins eftir á einum stað og þar kemst enginn leiðar sinnar á bíl.
Öldufellsleið var lokað í morgun. Þar er svo mikið vatn á veginum að hann er ófær öllum farartækjum.
Veginum um Breiðdalsheiði hefur líka verið lokað vegna vatnsskemmda. Vegurinn fór í sundur á kafla vegna vatnavaxta.