Bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar í Hafnarfirði segir að bakslag hafi orðið í stöðu barnafjölskyldna í bænum eftir að meirihlutinn samþykkti að lækka systkinaafslátt á leikskólum bæjarins. Bætist þessi lækkun ofan á breytingar á útgreiðslum frístundastyrkja sem vakið hafi mikla óánægju meðal íbúa sem sumir hverjir segja meirihlutann þrengja í auknum mæli að hag barnafjölskyldna.
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“