Horfurnar hjá leigjendum virðast fara batnandi, samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að leigjendur telja fleiri íbúðir í boði á sama tíma og verðþrýstingur hefur minnkað. Þeir gera ráð fyrir að leiguverð hækki áfram en ekki jafn mikið og áður.
Leigubyrðin er þó íþyngjandi fyrir tæplega helming leigjenda samkvæmt könnuninni og vísbendingar eru um að fleiri leigjendur en áður séu að festast á leigumarkaði. Þeim sem leigja af nauðsyn fjölgar hlutfallslega og fólk er að meðaltali lengur í leiguíbúð en áður. Leigjendur eru svartsýnni en áður á að komast af leigumarkaði.
Leigumarkaðskönnunin leiðir í ljós nokkurn mun á innfæddum leigjendum og þeim sem hafa flutt hingað. Aðfluttir leigjendur segjast sjaldnar fá greiddar húsnæðisbætur en innlendir. Erlendir leigjendur eiga þó betra með að safna sparifé en íslenskir.
Aðfluttir leigjendur upplifa minna húsnæðisöryggi en íslenskir og eru ólíklegri til að leigja óhagnaðardrifið húsnæði. Þeir eru einnig líklegri en Íslendingar til að leigja herbergi, bílskúra, deilihúsnæði eða atvinnuhúsnæði til búsetu.