Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðskipta. Vitni, sem er fyrrverandi maki æskuvinarins, sagði að slitnað hefði upp úr vinskapnum vegna skuldarinnar á vordögum 2025.
Þetta kom fram í máli vitnisins þegar hún gaf skýrslu á þriðja degi aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Í málinu er Georgios Ntentes frá Grikklandi gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Á fyrsta degi aðalmeðferðar kom fram í máli aðstandenda hins látna að Georgios hefði skuldað honum pening, en systir hans taldi upphæðina nema á annað hundrað þúsund.
Gera átti hlé á aðalmeðferð málsins í dag en vegna seinkana á vitnaleiðslum var henni haldið áfram. Skýrsla var tekin af lögreglumanni sem fór á heimili Georgios þegar lögregla hafði lýst eftir honum. Hann sagðist hafa fengið upplýsingar um að Georgios væri grunaður um fíkniefnamisferli. Hann sagði að kona Georgios hefði komið til dyra, sótt hann og hann hefði verið rólegur og samvinnuþýður.
Þá var skýrsla tekin af lögreglumanni í tæknideild sem bar saman blóðug skóför á vettvangi við skó sakbornings og af lyfjafræðingi við rannsóknardeild Háskóla Íslands sem greindi blóð- og þvagsýni úr hinum látna að beiðni réttarlæknis.
Kókaín í blóði og skuld vegna fíkniefnaviðskipta
Lyfjafræðingurinn sagði að kókaín hefði fundist í blóði hins látna og umbrotsefni hefði gefið til kynna að hann hefði notað kókaín í einhvern tíma. Hún sagði erfitt að segja til um magn kókaíns í blóði úr krufningu. Það hefði þó verið í talsverðu magni, en hvort það teldist nógu mikið til að koma hinum látna í geðrofsástand sagði hún ekki hægt að segja til um það því það færi eftir neyslusögu.
Þriðja vitnið var fyrrverandi maki æskuvinar hins látna sem þekkti bæði hinn látna og sakborninginn. Hún sagðist hafa heyrt af andlátinu í gegnum sinn fyrrverandi og ákveðið að hringja í sakborninginn til að segja honum frá því. Hún segir hann hafa komist í uppnám og beðið um að fá að hringja í hana seinna.
Þá bar hún einnig vitni um að hennar fyrrverandi hefði verið góður vinur hins látna en upp úr vinskapnum hefði flosnað vegna stórrar skuldar æskuvinarins við hinn látna. Hún hafi numið milljónum og væri til komin vegna viðskiptasambands þeirra, líklega vegna fíkniefna.