Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir

Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir

Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir

Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir, 81 árs kennari og sjúkraliði, er meðal fjölmargra eldri borgara sem hafa tekið svefnlyf árum saman. Hún hóf notkun þeirra í krabbameinsmeðferð árið 2008 og hélt áfram eftir að meðferðinni lauk.

Á einum tímapunkti var hún farin að taka þrjár Imovane-töflur á kvöldi en síðustu sex ár hefur hún notað Stilnoct til að sofa. Fyrir tveimur mánuðum lagði heimilislæknir hennar til að hún reyndi að draga úr notkuninni. Síðan þá hefur Jóhanna minnkað neysluna verulega og hún segir jafnvægi, skap og almenna líðan hafa batnað verulega.

„Ég byrjaði að nota svefnlyf þegar ég var í krabbameinsmeðferð 2008 og síðan hef ég notað slík lyf,“ segir Jóhanna.

Ákvörðunin hafi á sínum tíma virst fullkomlega rökrétt.

„Ég var alveg sannfærð um að besta lækningin í krabbameinsmeðferðinni væri að geta sofið vel,“ segir hún.

Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir tókst með aðstoð að draga verulega úr notkun svefnlyfja. Hún stefnir á að hætta alveg. Vísir

Krabbameinsmeðferðinni lauk einu og hálfu ári síðar en svefnlyfin fylgdu henni áfram.

Fór úr einni töflu í þrjár

Fyrsta lyfið sem Jóhanna tók var Imovane. Smám saman fann hún þó að áhrif þess minnkuðu.

„Mér fannst töflurnar virka minna og minna á mig,“ segir Jóhanna.

Í kjölfarið fór skammturinn hækkandi.

„Ég fór að taka tvær töflur og síðan þrjár,“ segir hún.

Jóhanna segir að sér hafi ekki liðið vel þegar notkunin var hvað mest.

„Þegar ég tók þessar þrjár töflur var ég ekki sjálfri mér lík,“ segir hún.

Hún leitaði þá til heimilislæknis og ákveðið var að skipta yfir í Stilnoct.

Reynslan svipuð hjá öðrum

Saga Jóhönnu endurspeglar það sem sérfræðingar sem Kompás ræddi við segja um svefnlyf og svefnvanda. Þetta sé eitt helsta vandamálið við langtímanotkun svefnlyfja eða að mynda þol á skömmum tíma. Skammtímasvefnlyf sem upphaflega átti að nota tímabundið verði að meðferð sem haldi áfram árum saman.

Hildur Þórarinsdóttir, lyf- og öldrunarlæknir á Landspítala, segir enn fremur í Kompás að hefðbundin svefnlyf geti valdið ávanabindingu.

„Þannig að þú situr uppi með að þú eigir jafn erfitt með að sofa og áður en þú hófst töku lyfjanna nema nú ertu orðinn háður lyfinu,“ segir Hildur.

Helga Kristinsdóttir, klínískur lyfjafræðingur á öldrunarsviði Landspítala, segir þol geta myndast á tiltölulega skömmum tíma.

„Það tekur ekkert langan tíma að mynda þol. Það geta bara verið nokkrar vikur sem það tekur og þá er auðvitað freistandi að auka skammtinn,“ segir Helga.

Með hækkandi skammti eykst jafnframt hættan á aukaverkunum sem geta verið sérstaklega varasamar hjá eldra fólki.

Anna Birna Almarsdóttir, prófessor í félags- og klínískri lyfjafræði, lýsir vandanum með beinum hætti.

„Þegar þú ert búinn að vera að taka þetta dag eftir dag í meira en mánuð þá eru þetta ekki svefnlyf lengur. Þau eru ekki að hjálpa þér að sofa. En þú þarft þau samt,“ segir Anna Birna.

Vissi um aukaverkanirnar

Jóhanna er sjúkraliði og segist því hafa vitað að svefnlyf gætu haft aukaverkanir. Hún hafi þó ekki gert sér fulla grein fyrir því hvaða áhrif áralöng notkun gæti haft á hana sjálfa.

„Ég hugsaði meira að segja um tíma: Ég er orðin svo gömul að það er bara allt í lagi að ég venji mig á einhverjar svefntöflur ef ég sef vel af því,“ segir Jóhanna.

Aðspurð um hvort rætt hafi verið við hana um að hætta lyfjunum á þessum átján árum segir hún það aðeins hafa gerst einu sinni eða þegar hún var að ljúka krabbameinsmeðferðinni.

Tókst að trappa sig niður á átta vikum

Vendipunkturinn kom hins vegar fyrir tveimur mánuðum þegar Jóhanna leitaði til heimilislæknis vegna þess að henni leið illa. Hann lagði til að hún færi í skipulagða niðurtröppun svefnlyfsins samhliða hugrænni atferlismeðferð við svefnvanda.

Fyrstu viðbrögð hennar voru að vilja losna tafarlaust undan lyfjunum.

„Ég ákvað að prófa og vildi þá losa mig strax við svefntöflurnar. Það gekk hins vegar ekki svo ég fór aftur að taka eina töflu,“ segir Jóhanna.

Læknirinn hafði varað hana við því að fara of geyst.

„Hann sagði mér að byrja bara aftur að trappa mig hægt og rólega niður. Þetta ferli gæti tekið allt að tólf vikur,“ segir hún.

Þegar Jóhanna fór að fylgja þeirri áætlun gekk niðurtröppunin mun betur.

„Ég fann strax muninn,“ segir hún“

Ótrúlegar breytingar

Það sem kom Jóhönnu mest á óvart var ekki aðeins að henni tókst að minnka notkunina heldur hversu fljótt hún fann breytingu á líðan sinni.

„Ég varð miklu glaðari og frískari á morgnana,“ segir Jóhanna.

Jóhanna finnur gríðarlegan mun eftir að hún dró verulega úr notkun svefnlyfjanna.Vísir

Hún segir líkamlega jafnvægið hafa batnað og hún hafi upplifað meiri vellíðan almennt.

„Ég er í betra skapi og ánægðari og mér líður allri miklu, miklu betur,“ segir hún.

Svefninn hafi jafnframt breyst.

„Ég sef ekki svona þungt og oft illa eins og þegar ég er á svefntöflum,“ segir Jóhanna.

Í dag tekur hún hálfa Stilnoct-töflu stöku sinnum en stefnir að því að hætta alveg. Hún bjóst ekki við því að finna svo fljótt fyrir breytingunni.

„Þetta kemur mér mjög á óvart og helst hvað ég fann breytinguna fljótt. Það er þess vegna sem ég held þessu áfram,“ segir hún.

Regluleg eftirfylgni skipti sköpum

Jóhanna segir reglulega eftirfylgni heimilislæknisins hafa skipt verulegu máli. Það hafi veitt henni öryggi að vita að fylgst væri með hvernig henni gengi og að hægt væri að bregðast við ef eitthvað kæmi upp. Hún hefur einnig haldið svefndagbók sem hún segir veita sér mikið aðhald.

„Læknirinn hringir í mig, einu sinni í viku eða svo, til þess að spyrja hvernig mér gangi og gefur mér ráð. Þetta er mikill stuðningur,“ segir Jóhanna.

Reynsla hennar rímar við það sem Hildur Þórarinsdóttir lyf- og öldrunarlæknir segist sjá í starfi sínu með eldra fólki.

„Við höfum margsinnis séð að fólk kemur inn með slævandi lyf. Þegar við minnkum, drögum úr eða hættum þá batnar mjög mikið vitræn færni,“ segir Hildur.

Jóhanna stefnir nú að því að hætta alveg á svefnlyfjunum. Skilaboð hennar til annarra sem hafa tekið slík lyf árum saman eru einföld.

„Ef ég get þetta þá geta allir þetta,“ segir Jóhanna.

#eftir #kveður #svefnlyfin #ára #átján


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942333d/kvedur-svefnlyfin-eftir-atjan-ara-notkun

📰 Aðrar fréttir

Þorsteinn Pálsson: Að niðurgreiða verðbólgu með gildislausum verðbólgukrónum er eins og að lækna rauða hunda með því að velta sér upp úr hveiti
📅 01.10.2026 👁️ 0
Þorsteinn Pálsson: Að niðurgreiða verðbólgu með gildislausum verðbólgukrónum er eins og að lækna rauða hunda með því að velta sér upp úr hveiti
„Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrgðarlaust bandalag til að þvinga ríkisstjórnina til að hverfa frá ábyrgri ríkisfjármálastef...
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“
Bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar í Hafnarfirði segir að bakslag hafi orðið í stöðu barnafjölskyldna í bænum eftir að meirihlutinn samþykkti að...
Fleiri leigjendur að festast á leigumarkaði
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fleiri leigjendur að festast á leigumarkaði
Niðurstöður árlegrar leigumarkaðskönnunar benda til þess að fleiri leigjendur séu að festast á leigumarkaði. Hlutfall leigjenda sem leigir af nauðsyn ...
Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli
Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur ákært belgískan mann á sextugsaldri fyrir brot á lögum um lax- og silungsveiði. Manninum er gefið að sök að hafa ...
Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, en hann tók við stjórn fyrirtækisins í miðju efnahagshruni árið 2009. Þ...
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
📅 01.10.2026 👁️ 0
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
Gunnar Örn Helgason hefur verið ráðinn sölustjóri Haga miðla, nýrrar rekstrareiningar Haga á sviði smásölumiðlunar. Gunnar býr yfir rúmlega 20 ára rey...
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
Unglingur í Laugardal var bundinn af samnemendum sínum og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í september. Límband mun einnig hafa verið sett yfir ...
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
Bandarísk kona er fótalaus eftir að læknir fjarlægði fyrst rangan fót af henni. Konan krefst hárra skaðabóta.Breska blaðið The Daily Star greinir frá ...
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
Horfurnar hjá leigjendum virðast fara batnandi, samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að leig...
Hungur sverfur að Jemenum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hungur sverfur að Jemenum
Sífellt fleiri börn í Jemen þjást af vannæringu. Eftir að stríðsátök brutust út á ný hafa 145.000 manns lagt á flótta. Alþjóða heilbrigðisstofnunin va...
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
📅 01.10.2026 👁️ 0
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
Adam Polovincik tells the BBC he told his young children "everything is going to be all right" as flight plunged more than 17,000ft (5,200m).
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
„Viðsemjendur okkar eru að kalla eftir viðbragði við forsendubrestinum en við  erum á hinn bóginn líka að upplifa forsendubrest þar sem verðmætaauknin...
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkurmálinu neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Aðeins einn var viðstaddur þingfestin...
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
Hrafnhildur staðfesti tíðidin í samtali við Smartland fyrr í dag. Árni og Hrafnhildur hafa verið saman um árabil, gengu í hjónaband júní 2023 og eiga ...
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
Af karlmönnunum níu eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar. Einn ákærðra, Arthur De Araujo Faria, mætti fyrir dómara en hinir átta tóku þá...
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
Þetta kemur  fram í færslu Þorsteins á samfélagsmiðlinum Facebook. Á fasteignavef Vísis má sjá að um er að ræða glæsilegt og mikið endunrnýjað 288,4 f...
Vegir lokast vegna vatnavaxta
📅 01.10.2026 👁️ 1
Vegir lokast vegna vatnavaxta
Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökul...
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
📅 01.10.2026 👁️ 0
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
The body of the baby found along the north Wales shoreline was a girl, a post-mortem has revealed.
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu skipverja Bandero, um að fá haldlagningu aflétt af farsíma sínum, var hafnað.
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur brugðist við fregnum af áætlunum Rússa til þess að ráða hann og fleiri andófsmenn af dögum í s...
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur óvænt boðað til starfsmannafundar hjá fyrirtækinu eftir hádegi í dag. Frá þessu greina Vísir og mbl.i...
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
34 ára súdanskur flóttamaður hefur verið settur í gæsluvarðhald í Frakklandi, grunaður um að hafa nauðgað og myrt 93 ára konu á heimili hennar í Toulo...
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump Fréttin1. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Fjórðungur bandarískra ful...
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 0
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
The Canary Islands will host their first professional international stage cycling race next January, with a new Vuelta Ciclista a Canarias taking plac...
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði bo...
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
📅 01.10.2026 👁️ 1
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
The Sikh activist from Dumbarton was arrested in 2017 in connection with alleged terror offences.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrj...
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt...
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G.  í ...
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki...
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á ...
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðsk...
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í gær að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Euro...
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
Á stjórnarfundi RÚV í gær var lögð fram bókun um að beina þeim tilmælum til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, að...
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
Yfirlæknir og deildarstjóri á Landspítala gera athugasemdir við þátt Kveiks á RÚV þar sem fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum. ...
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þeir verði í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikur, eða til 28. október. Málið varðar innflutning á fimm kílóum af ...
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
📅 01.10.2026 👁️ 1
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
Thick fog has disrupted operations at Tenerife North Airport this morning (Thursday), forcing four incoming flights to divert because of poor visibili...
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
📅 01.10.2026 👁️ 1
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
The president wants AI to be called super intelligence - or SI - the same initials used by Slovenian domains.
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
Einnig verður rætt við oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, be...
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
Aðalmeðferð í málinu hófst á þriðjudag og hélt vitnaleiðsla áfram í dag. Ntentes hefur þegar gefið skýrslu fyrir dómi auk þess sem hann hefur sætt gæs...
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
Fundurinn á að vera haldinn í Póllandi seinna í október en á meðal þeirra sem hafa ekki fengið boð á hann eru Frakkar, Bretar og ríkisstjórnir Eystras...
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
Hotels in the Canary Islands are evolving. Distinctive architecture and nature-led experiences are giving holidaymakers more choice, while offering im...
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
Matthías Már Magnússon, útvarpsmaður og dagskrárstjóri Rásar 2, greinir frá því á Facebook-síðu að hann hafi greinst með krabbamein á dögunum. Fram un...
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer hörðum orðum um Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-s...
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, gagnrýnir klúðrið varðandi útboð knattspyrnustúku við Kórinn. Algjör óvissa ríkir um framhaldið o...
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
Hjörleifur Björnsson skrúðgarðyrkjufræðingur, einn eigendanna, leggur áherslu á að hugsa um garðinn og fasteignina í heild. Mikilvægasta verkið sé nef...
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“ Borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, Hild­ur Björns­dótt­ir, leggst gegn stó...
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
📅 01.10.2026 👁️ 0
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, segist hafa séð leigubílstjórann Saint Paul Edeh, sem hann kallar „Heilagan Pál“ eða „Dýrlinginn“, r...
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
Matthías greindi frá tíðindunum á Facebook nú í morgun. „Fyrir tveim vikum endaði ég á Bráðamóttökunni sökum orkuleysis, var einhvern veginn alveg búi...
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað. Þau hjónin ákváðu að minnka við s...